31.07.1912
Neðri deild: -1. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 556 í B-deild Alþingistíðinda. (958)
52. mál, Grundarkirkja
Flutningsm. (Stefán Stefánsson):
Það voru að eins örfá orð viðvíkjandi því sem háttv. 2. þm. S.-Múl. (J. Ó.) sagði. Hann er alt af að tala um endurgjald; en hér er ekki um neitt slíkt að ræða, heldur aðeins að þetta litla gjald, sem á að ganga til prestanna, gangi í þess stað til að borga lítinn part af viðhaldi kirkjunnar um fáein ár. Mörg verða árin að líkindum ekki, því sóknin mun stækka svo, áður langir tímar líða, að kirkjan hafi innan skamms nægilegar tekjur upp í hinn árlega kostnað. Þess hefir verið getið að frekar væri verðlaunavert að byggja skóla, sjúkraskýli eða því líkt. En það fer eftir því hvernig á er litið. Eg álít það samskonar og jafn þakkavert er menn leggja á sig kostnað til almennings þarfa hvort sem það er til þessa eða hins fyrirtækis, sem annars þykir varða almennnings heill. Og þetta var ekki neitt skylduverk sem Magnús inti af hendi. Hann gat látið kirkjuskriflið standa, en honum þótti það ekki sæmilegt guðshús. Eg lít svo á, að þetta sem farið er fram á, séu svo hóglát tilmæli, að næstum sé minkun fyrir þingið, ef það sinnir þeim að engu.