31.07.1912
Neðri deild: -1. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 556 í B-deild Alþingistíðinda. (959)
52. mál, Grundarkirkja
Guðlaugur Guðmundsson:
Eg vildi að eins minnast á eitt atriði í þessu máli, sem að mínu áliti er aðalatriðið í því. Samkvæmt prestakallalögunum nýju á að gera Eyjafjörð allan að einu prestakalli með því að sameina Grundarþing og Saurbæjarþing. En skilyrðið fyrir því er að kirkjunum sé fækkað. Þær eru nú sjö í Eyjafirði og einn prestur getur ekki þjónað svo mörgum kirkjum. Það þyrfti að fækka þeim niður í 3 eða 4. En skilyrðið fyrir því að hægt væri að fækka kirkjunum var aftur að ein þeirra væri stækkuð að mun.
Þetta var það sem vakti fyrir Magnúsi er hann bygði kirkjuna upp, að gera það mögulegt að leggja saman sóknirnar og ryðja þannig brautina fyrir sameining prestakallanna. Þingið verður líka að líta á það, að þegar prestaköllin verða sameinuð þá sparar landssjóður ein prestalaun á ári. Væri Grundarkirkja sama skriflið nú og áður, þá væri miklu örðugra að koma fram sameining prestakallanna, en það væri prestalaunasjóði meira tjón en þó þetta gjald sé gefið eftir í nokkur ár. Eg veit að í héraðinu er talsverð mótspyrna móti sameiningunni, en þó held eg að hún nái fram að ganga ef næstu sóknir við Grundarsókn verða lagðar við hana, en til þess það gæti orðið, var nauðsynlegt að byggja þessa kirkju á Grund; að öðrum kosti var sameining sóknanna ómöguleg, og fari svo að hin veglega kirkja á Grund verði tekin til annarar notkunar og í hennar stað bygt venjulegt hjallskrifli til guðsþjónustunnar, þá er útséð um sameininguna, og það kostar landssjóð (prestalaunasjóð) einum presti fleira á ári, eða 1.300 — 1.700 kr. á ári.