31.07.1912
Neðri deild: -1. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 561 í B-deild Alþingistíðinda. (966)
56. mál, nýtt læknishérað Hnappadalshérað
Flutn.m. (Eggert Pálsson):
Það er óþarft að fara mörgum orðum um frv. þetta, því það er ekki nýr gestur hér á þingi. Og vitanlega eru sömu ástæður fyrir því og meðmæli með því nú og áður, staðhættir eru þeir sömu í sveitum þeim er farið er fram á að gerðar séu að sérstöku læknishéraði og áður hafa verið, og yfir höfuð allar kringumstæður óbreyttar. En þó mun viðkunnanlegra að fara nokkrum orðum um frv. Frá mínu sjónarmiði horfir málið svo við, að eigi nokkurt svæði skilið að verða gert að sérstöku læknishéraði, þá sé það þetta. Það nær yfir 4 hreppa og liggur milli tveggja ófærra vatna, Þverá á aðra hlið og Jökulsár á Sólheimasandi á hina.
Íbúatalan á þessu svæði mun vera 15—16 hundruð, svo að mörg læknishéruð á landinu eru þannig miklu mannfærri en þetta hérað kæmi til að verða. En aðalástæðan til þess að farið er fram á þetta, er þó ekki mannfjöldinn heldur sú, hversu erfitt er að ná í lækni fyrir menn er þarna búa, vegna þessara ófæra beggja megin, er eg mintist á. Að vísu hafa verið samþykt lög um brú á Jökulsá þegar fé verður til þess veitt á fjárlögunum, en það á sennilega langt í land, að kringumstæður landssjóðs þyki svo góðar að verkið komist í framkvæmd. Sömuleiðis hefir verið ákveðið að setja upp dragferju á Þverá, en enn þá hefir ekkert úr því orðið, með því að landsverkfræðingur telur það svo miklum erfiðleikum bundið og óvíst hvort að notum geti komið. Þörfin á lækni er því söm og áður á þessu svæði.
Eg skal svo eigi fjölyrða meir um frv. en láta mér nægja að leggja til að því verði vísað til nefndar þeirrar sem hefir samskonar mál til meðferðar.