05.08.1912
Neðri deild: -1. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 571 í B-deild Alþingistíðinda. (993)
64. mál, forkaupsréttur landssjóðs
Flutn.m. (Stefán Stefánsson):
Eg get ímyndað mér að sumum hv. þm. þyki undarlegt að eg skuli flytja þetta frv., sem fer fram á það, að seldar þjóðjarðir verði aftur keyptar af landinu, þar sem eg hefi áður verið meðmæltur þjóðjarðasölu. En það er nú samt einmitt af því að eg er henni meðmæltur, að eg kem með þetta frv. Eg álít það sem sé illa farið, þegar seldar þjóðjarðir komast úr höndum þeirra, sem þær hafa keypt, af einhverjum ástæðum, þannig, að þeir eiga ekki annars úrkost, en að selja þær hinum eða þessum, sem hvorki þarf eður hugsar sér að nota jörðina til ábúðar; með því getur verið fyrir það girt í næstu framtíð, og ef til vill um langa tíð, að þær jarðir komist aftur í sjálfsábúð. Hér er nú farið fram á það, að landssjóður fái forkaupsrétt að slíkum jörðum, svo framarlega sem ábúandi eða sveitarfélagið kæra sig ekki um þær, eingöngu til þess að sjá um eftir því sem löggjafarvaldinu frekast er unt, að jarðir haldist í sjálfsábúð. Það getur verið, að þessi réttur landssjóðs yrði sjaldan notaður, en eg hygg að hann mundi þó oft og einatt koma að góðu liði og það þegar mest á riði. Það er þegar orðin mikil eftirspurn af hálfu útlendinga eftir jörðum og það aðallega þeim jarðeignum, sem allra bagalegast er að selja, og um leið og þær eru úr sjálfsábúð, er tvöfalt meiri hætta á því, að útlendingar nái jörðunum. Til þess að sporna sem mest við því, að jarðeignir gangi til þessara manna, virðist mér vænlegasta og jafnvel eina ráðið, þegar hvorki ábúandi eða sveitarsjóður notar sinn forkaupsrétt, þá sé það landið sjálft, eða með öðrum orðum landssjóður, sem eigi kauparéttinn.
Það mætti nú máske segja, að það væri öllu réttara að láta ákvæði þessa frv. ekki einungis ná til þeirra jarða, sem hafa verið þjóðjarðir, heldur og til þeirra, sem verið hafa kirkjujarðir eða jafnvel einstakra manna eign, en til þess að athuga það og fleira, vil eg leggja til að kosin verði 5 manna nefnd í málið, þegar þessari umr. er lokið, því að eg vona að hv. deild virði það þó svo mikils, að lofa því að fara til 2. umr.