18.08.1913
Neðri deild: 37. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 1370 í C-deild Alþingistíðinda. (1001)

1. mál, fjárlög 1914 og 1915

Ráðherrann (H. H.):

Eg ætla að eins að gera örstutta athugasemd út af ræðu háttv. 1. þingm. Rvík. og síðari hluta ræðu háttv. 2. þm. S.-Múl.

Háttv. 1. þm. Rvk. lét í ljósi, að hann mundi greiða atkvæði með tillögum fjárlaganefndarinnar, um að skáldunum væri að eins veittur styrkur til eins árs. í þeim tilgangi, að stjórninni gæfist tækifæri til að ráðstáfa þessu máli og koma styrkveitingunni í betra horf.

Það geta verið skiftar skoðanir um margt af því, sem hann sagði, en eg er fullkomlegs samdóma honum um það, að óviðkunnanlegt sé að vera að meta skáldin hér í þingsalnum, tala um, hvers þeir séu verðugir og hvað þeir séu á marga fiska h ver, og að heppilegt væri í ýmsum tilfellum að stjórnin hefði fé til umráða til þess að geta veitt styrk í sérstökum tilfellum, til sérstakra verka eða í sérstakri þörf. En slíkt getur ekki átt við um þá sem styrktir eru til þess að geta gert ritstörf að lífsstarfi sínu. Þeir verða að hafa fastákveðinn árlegan styrk eða laun. Það er ómögulegt fyrir menn að sleppa öðrum atvinnustörfum og leggja út í að gefa sig algerlega að ritstörfum í trausti til opinbers styrks; ef þeir eiga á hættu við næstu ráðherraskifti að missa algerlega það sem þeir þurfa til lífsviðurværis. Löggjafarvaldið þarf að slá því föstu um þá menn, sem ætlast er til að gefi sig eingöngu við ritstörfum, hvort heldur þeir eru skáld eða rithöfundar, að þeir fái ákveðna árlega upphæð. Hitt, að stjórnin sé látin hafa sérstaka upphæð til að veita ungum mönnum styrk, er þurfa að fara utanlands til að lúka námi, eða þeim sem eiga að vinna eitthvert verk, álít eg til mikilla bóta.

En mér er Spurn: Hvers vegna getur ekki stjórnin, sem sér um undirbúning fjárlaganna undir þingið 1915 — hver svo sem hún nú verður — tekið upp í frumvarp sitt upphæð í þessu skyni, þó að nú sé haldið styrkveitinnunni fyrir bæði árin eins og verið hefir að undan förnu ?

Eg álít því lang heppilegast að samþykkja ekki þessa breytingartill. fjárlaganefndarinnar, heldur stjórnarfrumvarpið óbreytt, en jafnframt leggja stjórn inni á hjarta að koma fyrir næsta fjárlagaþing með uppástungur um aðra tilhögun á þeim styrkveitingum, sem ekki eru fastur Skáldastyrkur eða skáldlaun.