18.08.1913
Neðri deild: 37. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 1374 í C-deild Alþingistíðinda. (1003)

1. mál, fjárlög 1914 og 1915

Sigurður Sigurðsson:

Það hefir verið talað með miklum fjálgleik hér í deildinni í dag um skáld, rithöfunda og listamenn í sambandi við styrk til slíkra manna. Það er nú langt frá mér að fara að hefja umræður um þetta mál, og eg álít að það eigi alla ekki við að vera að meta gildi einstakra skálda og listamanna eða verk þeirra hér á þinginu. Mér er yfir höfuð illa við að ræða nokkuð um einstaka menn, sem ekki eiga sæti hér í deildinni, hvort heldur sem það umtal er lof eða last í garð þessara manna. Og hvað snertir þá menn, sem styrks njóta samkvæmt 15. grein fjárlaganna, þá er mér fremur vel við þá flesta. Þeir eru allir einstaklega almennilegir menn, vammalausir og leiða af sér fremur gott og ilt, og það er meira en sagt verður um alla þá, sem sæti eiga á þessu þingi, og suma aðra, sem sitja í konunglegum embættum hér á landi. En af öllu má þó of mikið gera. Og það gengur lengra en góðu hófi gegnir, að fara að búa til fastar launaðar stöður handa skáldum og listamönnum.

Fyrir mér er það alveg nýtt að heyra því haldið fram. að styrkinn til skálda og listamanna beri að skoða sem föst laun, og eg vil fyrir mitt leyti mótmæla þessum skilningi.

Fjárlaganefndin hefir lagt til, að styrkurinn verði veittur að eins fyrra árið, og þykir það auðvitað stefnubreyting að því er snertir styrkinn til þeirra.

Hitt er ekki neitt aðalatriði meiri hluta nefndarinnar, hvort styrkurinn er hærri eða lægri upphæð. Eg sagði meiri hlutanum því, að eg fyrir mitt leyti kysi að þessi styrkur sé sem lægstur.

Langréttast og eðlilegast væri, að þingið veitti að eins eina upphæð til skálda, rithöfunda og listamanna og stjórnin úthlutaði svo fénu eftir tillögum nefndar, sem skipuð væri valinkunnum mönnum, eða þá eftir tillögum háskólaráðsins. Það er í mesta máta óviðfeldið að vera að hnotabítast á hverju þingi um þessa styrkþiggjendur, og út á við vekur það hneyksli, að það skuli standa á fjárlögum ár eftir ár heil halarófa af mönnum, skáldum og listamönnum, sem njóta styrks á þennan hátt, meðal annars af því að mjög eru skiftar skoðanir manna um verðleika þessara manna og ágæti þeirra yfir höfuð.

Það er langt frá því að þjóðin telji eftir styrk til skálda og listamanna eins og sagt hefir verið. En hitt er annað mál, að margir álíta að það séu ekki allir skáld þó að þeir yrki. Og þó að þessir styrkir hafi einu sinni verið veittir upp á nafn, þá er ekki þar með sagt, að þeirri vitleysu eigi að halda áfram til eilífðar. Það er síður en svo. Í þessu sambandi vil eg benda á eitt, og það er, að það er eins og engir menn séu til undir sólunni nema skáld og listamenn. Einlægt er verið að hossa þeim og lofa þá. Því er haldið fram, að þeir séu einu mennirnir, sem að haldi uppi álíti þjóðarinnar bæði inn á við og út á við. Þetta er oflof, sem ekki er bygt á neinni sanngirni.

Það er ekki verið að hrópa hátt um það, þó að menn leggi lífið í sölurnar til þess að afla þjóðinni og landssjóði fjár og til að bjarga sér og sinum. Það eru sjaldnar lofaðar framkvæmdir manna í verklegum efnum. En ef maðurinn fæst við að yrkja, mála eða syngja, þá er hann strax orðinn alls góða verður og honum sungið lof og dýrð. Og þetta gengur svo langt, að það er undantekning ef út kemur svo skáldrit, jafnvel hvað lélegt sem það er, að því sé ekki hælt á hvert reipi.

Það var víst háttv. 2. þm. Rvk. (J. J.), sem óskaði þess með hjartnæmum orðum í sinni hjartnæmu ræðu, að við ættum tugi af skáldum og listamönnum. Það hefði víst enginn á móti því, ef að þessir menn væru þá sannir listamenn og hefðu eitthvað að gera og eitthvað til að lifa af. En fleira þarf nú að gera en að yrkja og mála, og við eigum helzt til marga, sem fást við þá hluti að nafninu til. Það er töluvert til í því, sem sagt var einhvern tíma, að þessir styrkir til skálda og listamanna kæmi mönnum til að yrkja og iðka listir.

Þetta sífelda lof og hól í garð skálda og listamanna hvetur menn til þess að fara að fást við þessa hluti og það þótt þeir hafi litla eða enga hæfileika til þess. Þetta dregur þá svo frá öðrum störfum á öðrum sviðum lífsins, þar sem mennirnir væru líklegri til þess að gera gagn. Eg veit heldur ekki, hvar það lendir, ef allir ættu nú að fara að yrkja, mála og syngja. — Hver sér þá um þurkinn á töðunni ?

Einhver gat þess — það mun hafa verið háttv. þingm. Dal — að vér hefðum farið illa með skáld vor og listamenn, og það svo, að þeir hefðu jafnvel dáið úr hungri. Voru þeir Sigurður Breiðfjörð og Sigurður málari Guðmundsson nefndir til þess. Eg skal ekkert um það segja, hvort svo hafi verið. En hitt er víst, að margur maðurinn, sem manntak var í og mikið hefði getað orðið úr, hefir dáið hér á landi úr hungri fyr meir. Annars vil eg segja það, að þingi og þjóð verður ekki álasað fyrir að hafa farið illa með skáld sín og listamenn; eg efast mjög mikið um, að öðrum þjóðum farist betur í því efni. Eg meira að segja fullyrði, að hvergi sé skáldum og listamönnum sýnd önnur eins viðurkenning eða veittur annar eins styrkur, samanborið við fólksfjölda og efnahag þjóðarinnar, eins og hér á landi. og það fer illa á því að vera sífelt að vanþakka þjóð og þingi fyrir það, sem gert er og hefir verið gert fyrir okkar skáld og listamenn.

Þá sagði einn þm. að Valdimar Briem væri hættur að yrkja. Ekki er hann kunnugur þessi þingmaður. Eg ætla nú ekki að fara að halda hlífiskyldi fyrir Valdimar Briem, en þess vil ég geta, að hann yrkir enn og þá meira en sumir aðrir, sem standa á skáldalistanum fjárlögunum, en það, sem hann yrkir, fer víst fyrir ofan garð og neðan hjá þeim sem þetta sagði. Kvæði Valdemars Briems birtast víst helzt í tímaritunum Breiðablik, Kirkjublaðinu og víðar.

Áður en eg lýk máli mínu, vil ég minnast örstutt á br.till. háttv. þm. Dal. (B.J.) á þgskj. 460, er fer fram á að fell niður styrkinn til unglingaskólanna. Þetta er óvanalega skynsamleg og heilbrigð tilaga miðuð við tillögur mann yfirleitt og mun ég greiða henni atkv. Eg álít einmitt að allir unglingaskólar eigi að takast undri einn lið á fjárlögunum og stjórnin eigi svo að úthluta styrknum eftri tillögum fræðslumálastjórans, sem byggjast vitanlega á verðleikum skólanna hvers um sig. Af þessu leiðir aftur, að ég get með engu móti aðhylst tillögu háttv. þm. V.- Ísf. (M.Ól.) á þgskj. 366 að taka unglingaskólann á Núpi í Dýrafirði út úr og láta hann standa sem sérstakan lið á fjárlögunum með sérstakri fjárveitingu. Verði þetta gert, þá leiðir af því, að fleiri koma á eftir með eina skóla og heimta, að þeir verði teknir upp á fjárlögin með sérstakri fjárveiting. Svo verður farið að hnotabítast um þessa liði á fjárlögunum, þar sem hver togar einn skækil. Þetta lengir umræðurnar um fjárlögin og eykur kostnaðinn við þingið. Auk þess mundi það auka á hreppa.og héraðspólitík þingmanna, sem nóg er af og aldrei skortir.

Af þessum ástæðum hlýt ég að vera á móti breyt. till. háttv.þm. V.-Ísf. (M.Ól.). Að öðru leyti skal ég ekki lengja umr. Sjálfur á eg enga breyt.till. sem eg þar að mæla með, og get því látið staðar numið.