18.08.1913
Neðri deild: 37. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 1410 í C-deild Alþingistíðinda. (1014)

1. mál, fjárlög 1914 og 1915

Ráðherrann (H. H.):

Háttv. þm. Dal. (B. J.) spurði um það, í hverju eftirlitið með Hvítárbakkaskólanum væri fólgið. Eg get ekki svarað því svo nákvæmlega í fljótum hasti, enda var fyrirspurninni ekki hagað eftir þingsköpunum. En það get eg sagt háttv. þm., að frá ársbyrjun 1912, þegar skólinn var lagður undir umsjón stjórnarráðsins, hefir verið samin fyrir hann reglugerð og skólinn verið háður eftirliti fræðslumálastjóra eins og aðrir unglingaskólar. Honum á skólinn að senda skýrslur um starf sitt og fræðslumálastjóri hefir eftirlit með því, að reglugerðinni sé fylgt. Eftirlit með kenslustarfinu í sjálfu sér verður auðvitað ekki haft frekara þar, en annarstaðar, en hitt veit eg, að fræðslumálastjórinn ætlar bráðum þar upp eftir. Frekara get eg ekki um þetta sagt að svo stöddu.

Úr því að eg stóð upp, ætla eg að minnast á fjárveitinguna til Bernarsambandsins. Hv. sami þm. gaf í skyn, að miklar ástæður væru á móti henni og að þær væru jafngóðar og jafngildar nú eins og síðast. Þetta er að því leyti satt, sem þær hafa alt af verið jafnillar og jafnógildar eins og þær eru enn, því að þótt svo illa vildi til þá, að 13 háttv. deildarmenn léðu atkvæði sín á móti þessu á þingi 1911, þá er það engin ástæða til þess, að láta menn halda áfram að missa rétt sinn í því skyni, að eitt félag hér geti haldið áfram að hnupla frá erlendum þjóðum. Það má með engu móti farast fyrir lengur að íslenzkir rithöfundar nái þeim rétti, er þeim ber, og sem getur verið þeim, sem vel duga, miklu meira virði heldur en jafnvel allríflegur skáldastyrkur af landssjóði.

Svo vil eg gera tvær athugasemdir við það sem háttv. framsögum. sagði. Hann kannaðist við það, að ástæða væri til þess, að láta þá rithöfunda, sem ætlast er til að gefi sig eingöngu við ritstörfum, hafa nokkru fastari kjör, en aðra. En þó áleit hann, að það væri óheppilegra að Alþingi úthlutaði þeim styrk, og væri betra að annað dómsvald gerði það. Taldi hann rétt, að mynda sérstakan sjóð af hluta viðlagasjóðs í þessu skyni, með sérstakri reglugerð, þar sem m. a. væri ákveðið, hverjir skyldu úthluta styrkaupphæðum úr sjóðnum. Eg hefi ekki hugsað þessa tillögu, því hún er mér ný. En eg hefi litla trú á, að þetta yrði mikið vinsælla. Það mætti setja dómnefnd til þess að skifta árlega lausastyrkjum, sem fé væri veitt til í einu lagi. En mér virðist enn sem fyr nauðsynlegt. að föst skáldlaun, þegar á annað borð er um slíka sæmd að ræða, séu veitt af löggjafarvaldinu, enda mun það alstaðar tíðkast. Mér finst líka lítil bót að því í peningalegu tilliti, að taka féð á þennan hátt úr viðlagasjóði. Það má standa á sama, hvort hann missir eitthvað af tekjum sínum, eða geldur út sem því svarar, og alveg jafnmargar umsóknir mundu koma til löggjafarvaldsins um sérstakar styrkveitingar eftir sem áður, þótt svona sjóður væri til. Hann mundi naumast fullnægja öllum, fremur en þingið.

Þá er hér önnur br.till. frá hv. nefnd, þar sem lagt er til að breyta styrk, þeim er stjórnin hafði ætlast til að dr. Guðm. Finnbogason hefði til að rita um heimapekileg efni, alt að 600 kr. hvort árið, þannig, að upphæðin sé lækkuð um 100 kr., niður í 500 kr., og þeirri upphæð bætt Við bókavarðarlaun hans við landsbókasafnið, sem persónulegri launaviðbót, en felt burt úr 16, grein. Það er satt, að þessi maður er nú 1. bókavörður, með afkáralega lágum launum, en veit nefndin að hann verði í þeirri stöðu framvegis? Eg veit það ekki, en eg hefi heyrt, að hann ef til vill hafi annað í hyggju. En hvers vegna á hann að missa styrkinn til heimspekisrita, þó að hann taki annað starf ? Að binda þessa fjárveitingu við stöðu 1. bókavarðar, er ekki rétt, ef það er meiningin, að dr. Guðm. Finnbogason eigi að verða hennar aðnjótandi til ritstarfa, eina og mér skilst helzt á nefndinni. Það verður að binda hana við nafn hans eingöngu En ef meiningin er að bæta laun l. bókavarðar Við landsbókasafnið, þá verður að gera það hver sem í hlut á, en ekki binda þá réttarbót sem persónulega launaviðbót við. tiltekinn starfsmann.