18.08.1913
Neðri deild: 37. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 1426 í C-deild Alþingistíðinda. (1020)
1. mál, fjárlög 1914 og 1915
Kristinn Daníelsson; Því sem háttv. þm. A:
Sk. (Þ. J.) sagði um dómkirkjuná í Reykjavík, hefir háttv. framsögum. fjárlaganefndar svarað. Það hefir oft verið farið fram á að Reykjavíkursöfnuður tæki að sér dómkirkjuna. Háttv. þm. A.- Sk. gat þess, að hann hefði leitað í landsreikningunum eftir tekjunum; en ekki fundið annað en punkta. Hann hefir leitað í landsreikningum fyrir 1910. Þar er eigi gerð fullkomlega grein fyrir tekjunum og stendur svo á því, að þegar breytt var sóknargjaldslögunum, gekk innheimtan svo tregt, að ekki var gerð skilagrein fyrir preststekjunum 1909–1910 fyr en haustið 1912, og fullnaðarskilagrein kom ekki fyr en nú á þinginu. Þannig atendur á, að ekki er hægt að sjá á landsreikningunum tekjurnar af dómkirkjunni á þessum síðustu árum En eg gáði í landsreikningana fyrir 1909 og sá þar, að árið 1908 var tekjuhalli af kirkjunni 586,84 kr., en árið 1907 var tekjuafgangur 1545,79 og árið 1906 tekjuhalli 596,00 kr.
Kirkjan hefir því í þessi 3 ár gefið af sér heldur meira en útgjöldin eru. Má ætla, að kirkjan hefði borgað sig eftir gamla gjaldmálanum, en eg efast um, að hún geri það eftir þeim nýja. Þótti mér rétt að láta þessa getið, til þess að sýna, hvernig sóknargjaldalögin nýju gefast.
Úr því að eg stóð upp, get eg ekki látið hjá liða að minnast á skoðun, sem kastað var fram hér í deildinni af einum háttv. þingm., og eg get ekki látið ómótmælt. Hv. þm. Sfjk. (V. G.) stakk upp á að innleiða hér skólagjald Get ég ómögulega verið því samþykkur. Við flesta unglingaskóla er nú reyndar borgað kenslugjald, en að mínu áliti ætti það að hverfa. Unglingum á að gefast kostur á að sækja skólana án nokkurs kenslugjalds. Eg áleit það spor í framfara áttina; að losa barnaskóla við skólagjald. Eg skal láta þess getið, að fjárlaganefndin hefir að vísu lagt til að hækka styrkinn til þeirra, en það þarf að hækka hann enn meira en hún hefir farið fram á, því eins og stendur eru skólarnir alt of þungur baggi á sveitarfélögunum.
Það getur ekki neinstaðar verið um skólagjald að ræða, nema þá ef til vill í mentaskólanum, ef menn óttuðust alt of mikla framleiðslu af inum svo kölluðu lærðu mönnum. Samt álít eg, að ekki beri að gera það, því með því móti yrði of erfitt fyrir allflesta að kosta syni sína og væntanlega hér eftir dætur í skólanum. Við vitum, að alþýðumenn eiga fult í fangi með að kosta börn sín í skóla, þó ekki bætist við þetta gjald. Eins er okkur vel kunnugt, að úr flokki alþýðunnar hafa komið margir af okkar beztu mönnum. Er eg ekki viss um, að þeir allir hefðu getað notið skólanáms og eigi orðið að sitja heima, hefði skólavistinni fylgt kenslugjald.