21.08.1913
Neðri deild: 38. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 1470 í C-deild Alþingistíðinda. (1038)
1. mál, fjárlög 1914 og 1915
Kristinn Daníelsson:
Eg á brt. þar sem farið er fram á, að ekkju Jens prófasts, og alþingismanns Pálssonar sé veitt viðbót við eftirlaun, þau sem henni bera, Má vera að þetta sé í eðli sínu ekki vinsælt mál, þar sem þjóðin virðist vera mjög mikið á móti eftirlaunum og vilji takmarka þau sem mest. En það mun enginn vera á móti, að viðurkenning sé sýnd, þegar hún kemur niður þeim stöðum, þar sem unnið hefir verið vel og trúlega fyrir þjóðina. Það er hér á tvent að líta, verðleikann og þörfina. Það kann að vera, að menn ekki séu vissir um verðleika umsækjanda sjálfs, en allir, sem þekkja hana, vita þó, að hún var í öllu samboðin sínum ágæta manni. Það fara lítt sögur af því starfi, sem konur vinna hér á landi, en þær eiga samt oft mikinn þátt í því, sem mennirnir nú eru taldir vinna.
Hér er um þann mann að ræða, sem öllum ber saman um að starfað hafi alla sína ævi með eldheitum áhuga að öllum framfaramálum þjóðarinnar, og það ætíð án nokkurrar eigingirni. Það þarf ekki að fjölyrða um gagnið, sem hann hefir unnið hér á þinginu, það er þinginu kunnugt, því að það má rekja sporin hans í gegnum þingið. Hann naut ekki mikillar viðurkenningar í lifanda lífi fyrir sitt mikla og góða starf, og því er þetta góð leið, ef þingið vill sýna einhvern lit á viðurkenningu að láta þá ekkju hans njóta hans, svo að hún þurfi ekki að hafa áhyggjur af lífinu í elli sinni. Í því trausti að þetta verði gert, kem eg með þessa tillögu.
Eg tel víst að líkt þessu hafi vakað fyrir stjórninni, er hún fer fram á að veita ekkju Jóns alþingismanns frá Múla ellistyrk. Án þess að eg vilji á nokkurn hátt mæla á móti þeirri styrkveitingu, þá hefi eg heyrt að sú ekkja kæmist allvel af og sé efnalega allvel borgið. En hér er slíku ekki til að dreifa. Hér eru efnin að eg hygg lítil, án þess að eg vilji berja nokkurn barlóm fyrir hennar hönd. Og þótt eg viti, að ekki standi nein neyð fyrir dyrum, ef þetta verður feit, þá finst mér þó þörf á að þessu verði sint, og vona að háttv. deild sé mér samdóma um, að hér fari saman verðleikar og þörf í þeim mæli, að þinginu ætti að vera ljúft að láta þessa tillögu ganga fram í einu hljóði.