19.08.1913
Neðri deild: 38. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 1478 í C-deild Alþingistíðinda. (1042)
1. mál, fjárlög 1914 og 1915
Stefán Stefánsson:
Eg á eina ofur meinlausa br.till. á þgskj. 406, sem fer fram á að veita Jósef Blöndal póstafgreiðslumanni á Siglufirði 5000 kr. lán til þess að byggja fyrir íbúðarhús. Hann hefir sent mér beiðni um að bera þetta fram hér á þinginu, og óskað eftir að eg leitaði umsagnar og meðmæli póstmeistara og landssímastjóra. Báða þessa menn hefi eg fundið viðvíkjandi þessu erindi, og hefir póstmeistarinn gefið beiðninni sin beztu meðmæli. Af vangá hef eg ekki fengið meðmæli símastjóra, hann var farinn burt úr bænum áður en mig varði, svo eg get ekki lagt fram skrifleg meðmæli frá honum, en eg veit að hann er því hlyntur að þetta lán fáist.
Á Siglufirði er, sem kunnugt er, mikill fjöldi fólks á hverju sumri, bæði úr ýmsum sveitum landsins, en þó mestur fjöldinn útlendir fiskimenn, og annars konar starfsmenn. Af þessu leiðir, að mjög mikil afgreiðsla verður að fara fram næstum daglega á pósthúsinu. Það er því mjög ilt, að þurfa að notast við aðra eins holu og pósthúsið er nú. Hvað símastöðina Snertir, þá er hún að vísu nýlega flutt í plássmeira hús en hún var í áður, en þó Svo lélegt að Siglfirðingar gátu ekki sjálfir notað það sem skólahús, og vilja þeir heldur baslast við þetta húsnæði til bráðabirgðu, heldur en rifa það niður, en gamali fiskhjallur er mér sagt að það sé. Annars finst mér það næsum sjálfsögð skylda þingsins að veita pósti og síma forsvaranlegan samastað. Það býðst Jósef Blöndal til að gera, ef hann fær þetta lán, og hann býðst til að setja fulla tryggingu fyrir endurgreiðslu lánsins, og enn fremur tekur hann það fram í bréfi til mín, að húsaleiga fyrir sima og póst skuli verða mjög rýmileg eða sanngjörn.
Það getur nú verið, að ekki séu mikil líkindi til þess að fé verði fyrir hendi til útlána úr viðlagasjóði, en þeim mun meinlausara er að samþykkja þessa br.till., þótt hún serði þá gagnslaus fyrir þann sem annars hefði átt að njóta lánsins.
Eg sé ekki ástæðu til að fjölyrða meira um þetta. Eg vona, að eg hafi skýrt svo ástæðurnar fyrir þessari tillögu, að menn sjái, að hér er ekki um neitt varhugavert fyrirtæki að ræða, þótt tilllagan verði samþykt.