20.08.1913
Neðri deild: 39. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 1504 í C-deild Alþingistíðinda. (1052)

108. mál, strandferðir

Bjarni Jónsson:

Það er að eins östutt athugasemd. Eg vildi lýsa yfir því sem fyrst, að eg er frumv. fylgjandi og tel það í alla staði vel ráðið, sem hér er farið fram á. Um leið vil eg lýsa undrun minni, ef Eimskipafélagi Íslands þykja sér ekki gerðir góðir kostir, þar sem það á að fá helming alls hlutafjárins úr landssjóði, og auk þess þann styrk, sem þarf til þess að láta strandferðirnar bera sig. Strandferðirnar í höndum Íslendinga eru ekki það háskafyrirtæki, að við þurfum að gjalda til þeirra mikið kenslufé, hvort sem stjórnin eða Eimskipafélagið hefir þær með höndum. Það að félögin, sem hafa rekið strandferðirnar, hafi ekki getað látið þær bera sig, er það svo auðsæum göllum að kenna, að úr þeim er enginn vandi að bæta. Eg nefni t. d. þann gallann, að láta hvorn bátinn ganga að eins meðfram helmingnum af ströndinni og mætast á Akureyri, í stað þess að láta þá báða ganga hringinn í kringum landið annan vestur um og hinn austur um, og sjá svo um, að hæfilega langur tími líði á milli þess að þeir koma á hverja höfn. Með þessu nóti yrðu samgöngurnar greiðar, mönnum gert þægilegra að nota skipin, og þá væru öll líkindi til að flutningur og ferðalög færu vaxandi. Eg er fullviss um að Íslendingum verður enginn skotaskuld úr að haga strandferðunum þannig, að þær gera miklu meira en að bera sig, eg nærri treysti mér að gera það sjálfur, þó að eg hafi aldrei fengist við skipaútgerð. Það er alt annað að vera innlendur maður og þekkja til frá fæðingu, hvernig öllu er hér háttað, eða útlendingur, þó að hann aldrei nema hafi náin kynni af viðskiptum landsins. Það er ekki til svo glöggur útlendingur, að hann sjái eins vel og innlendur maður, hvað bezt hentar hér á landi. En því betur sem reynt er að fylgja þörfum landsmanna, því vinsælli verða ferðirnar, og með því eina móti er hægt að láta þær bera sig.

Eg trúi því ekki, að Eimskipafélagið haldi áfram að hliðra sér hjá að taka þessu ágæta boði, en ef framkoma þess verður þannig, þá er það ið eina rétta, að landið sjálft taki að sér strandferðirnar. Það stendur á sama, hvort stjórnin eða Eimskipafélagið tekur að sér ferðirnar, því að í báðum tilfellunum verð skipunum stjórnað af mönnum, sem náin kynni hafa af landinu, svo að þeim getur aldrei stórlega mistekist. Þetta yrði þá auðvitað ekki til bráðabirgða, heldur tæki landssjóður að sér strandferðferðirnar fyrir fult og alt. Það mundi sýna sig, að hann tapaði ekki á þeim.

Eitt var það sem eg gleymdi áðan. Strandferðaskipin eiga ekki að lesa upp hverja vík og hvern vog hringinn kringum landið. Þar eiga að vera smábátar, sem taka við af strandferðaskipunum.

Það má ekki láta annað eins mál og þetta biða ár frá ári. Það er alveg rangt. Það getur verið gott að vera Varfærinn, en þá verður maður að vera varfærinn í fleiru en einn tilfelli. Þegar biðin kostar svo mikið, að hún nemur andvirði strandferðaskips á einu ári, þá er það engin varfærni og því síður fyrirhyggja, að láta það bíða að kaupa það.

Eg læt nægja þessa stuttu athugasemd, sem eg hefi nú gert. Ef mér þykir þurfa, þá mun eg koma með nánara yfirlit við 3. umræðu. En eg hygg, að naumast sé þörf á því, því að nefndin hefir að minni skoðun unnið vel og gert rétt í öllu, sem hún hefir gert.