20.08.1913
Neðri deild: 39. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 1506 í C-deild Alþingistíðinda. (1053)
108. mál, strandferðir
Framsm. (Valtýr Guðmundsson):
Háttv. 1. þm. Skgf. hefir gert nokkrar athugasemdir við álit nefndararinnar, og eru þær náttúrlega mikils verðar að mörgu leyti, en eg held þó, að flest það sem hann tók fram hafi verið tekið til athugunar í nefndinni. Eg held því, að þegar öllu er á botninn hvolft, þá greini hann og nefndina ekki mikið á, þó að svo kunni að út í fljótu bragði af ræðu hans.
Að því er það snertir, að of lítið sé sagt um flóabátana í nefndarálitinu, þá getur það verið satt. En eg skal geta þess, að von er á framhaldsnefndaráliti, þar sem það spursmál verður tekið til rækilegrar meðferðar, og mun nefndin koma fram með tillögur þar að lútandi.
Það var rétt, sem háttv. þm. (Ól. Br.) sagði, að því þurfti að koma svo fyrir, að flóabátarnir, strandferðaskipin og millilandaskipin tefðu ekki hvert fyrir öðru með því að koma á hafnirnar á sama tíma. Nefndin hefir tekið þetta til íhugunar og er sammála háttv. þm. (Ó. Br.), að nauðsynlegt sé að koma skipaferðunum í samanhangandi kerfi, svo að hvert skipið taki við af öðru. Mun verða gerð nánari grein fyrir þessu í framhaldi nefndarálitsins.
Annars hefir nefndin ekki treyst sér til að gera alt, sem gera þarf í þessu efni. Til þess þurfa svo margvíslegar upplýsingar, sem nefndin hefir engin tök á að afla sér. Tillögur hennar eru því engan veginn annað en bráðabirgðatillögur. Hins vegar hefir hún hugsað sér, að þetta mál verði tekið til rækilegrar íhugunar, og hún býst við að það verði gert af stjórnarráðinu. Til þess þyrfti sérstakan mann, er veitti stjórninni ráðunautsaðstoð til þess að rannsaka þetta mál til hlítar.
Samgöngumálin á sjó þyrftu að vera undir sérstakri stjórn, engu síður en póstmálin, símamálin og vegamálin. Er von á tillögum frá samgöngumálanefndinni í þá átt.
Nefndin hefir líka tekið það til íhugunar, hvort tiltækilegt væri að sleppa stærri strandferðaskipunum og láta nægja að millilandaskipin kæmu í þeirra stað og flóabátarnir tækju síðan við af þeim. Það var megn mótstaða móti þessu í nefndinni. Að því er virtist, þá voru skýr rök færð fyrir því, að ekki væri hægt að komast af án stærri strandferðanna, þó að flóabátarnir væru líka. Þá vill nefndin hafa næstum eins marga og hæstv. ráðherra stakk upp á, og álítur að ekki verði komist af án þeirra, jafnvel þó að stærri strandferða skip verði höfð, eins og hingað til hefir verið.
Viðvíkjandi því sem háttv. þm. (Ól. Br.) sagði, að bréf Tuliniusar væri ekki greinilegt og að skýrslan fyrir árið 1912 væri einungia bygð á áætlun, þá er það auðséð, að hann hefir ekki fengið fullkomnar upplýsingar um þetta. Tulinius gefur þó greinilega skýrslu um strandferðaskipið Austra fyrir árin 1910, 1911 og 1912, og þar sem hann gaf þessar upplýsingar alveg afdráttarlaust, þá áleit nefndin, að hún gæti bygt á þeim. (Ráðherrann: Upplýsingarnar eru ekki réttar). Eg heyri að hæstv. ráðherra segir, að þetta séu ekki réttar upplýsingar, en eftir því sem eg þekki Tulinius, þá byggi eg meira á honum en á Hendriksen. Eg hefi ekki ástæðu til annara en að álíta Tulinius áreiðanlegan mann í alla staði og óhlutdrægan. Hér er ekki verið að veita honum fé til strandferða, svo að honum gat ekkert gengið til að gefa ranga skýrslu. Það vita allir, að honum er mjög ant um samgöngur Íslands á sjó.
Háttv. 1. þm. Skgf. (Ól. Br.) lét þess getið, að hann gæti samþykt 1. gr. frumvarpsins, en ekki hinar greinarnar þrjár. Þar greinir hann ekki heldur mikið á við nefndina. Hún vill líka stefna að því, að Eimskipafélagið taki að sér strandferðirnar að öllu leyti. En eftir því sem ráða má af bréfinu frá bráða birgðastjórn félagsins, má gera ráð fyrir, að ómögulegt verði að fá félagið til að taka þær að sér, að minsta kosti fyrst um sinn. En úr því að það er tilætlunin, að koma strandferðunum á innlendar hendur, þá gat nefndin ekki séð annað ráð, en að landssjóður tæki þær að sér fyrst um, sinn.
Eg veit ekki, hvort háttv. þm. (Ó. B.) getur bent á önnur ráð, ef Eimskipafélagið fæst ekki til þess. En væri svo, þá mundi nefndin fúslega taka þau til íhugunar. Eg heyrði hann ekki benda á annað, en að það yrði að fara saman, að það félag, sem hefði á höndum millilandaferðirnar, hefði líka strandferðirnar, og þess vegna ætti Eimskipafélagið að taka þær að sér. Með því móti fengi það meiri flutning og gæti um leið orðið ódýrara, þar sem aukagjald sparaðist fyrir flutning áfram með strandferðunum. En það var einmitt þetta, sem nefndin hafði fyrir augum. Þess vegna vill hún gefa Eimskipafélaginu svo mikla hvöt til þess, sem unt er, að það taki að sér strandferðirnar með því að leggja til að það fái úr landssjóði helming alls hlutafjárins og ríflegan styrk að auki. Og þegar menn sjá tillögu við fjárlögin, sem er á leiðinni frá meiri hl. nefndarinnar, þá verður mönnum ljóst, að hann vill ganga enn þá lengra til þess að reyna að knýja félagið til að taka að sér strandferðirnar.
Þar sem háttv. þm. (Ó B.) leit svo á, að þetta væri að eins ráðstöfun til bráðabirgða, þá er það ekki alveg rétt. Þetta er ekki bráðabirgðaráðstöfun. heldur vararáðstöfun. Hitt, sem tekið er fram í 4 gr. að stjórnin megi leigja skip til bráðabirgða, ef þetta verður ekki fullbúið nógu snemma, það má kalla bráðabirgðaráðstöfun. Annað, sem nefndin leggur til, er einungis til vara, og kemur ekki til greina, ef Eimskipafélagið fæst til að taka að sér strandferðirnar.
Það var alveg rétt, sem háttv. þm. tók fram, að landsjóðsútgerð yrði altaf tryggari, ef einkaréttur fylgdi. Það er einmitt einkarétturinn, sem tryggir póstmálin, símamálin og önnur þess konar mál. Hann tók til dæmis, að ef Eimskipafélagið hefði að eina millilandaferðirnar, þá yrðu þeir sem notuðu þær, að borga aukagjald fyrir flutning með strandferðaskipunum frá aðalhöfnunum og til smærri hafna víðsvegar kringum landið. Fyrir þetta mundi félagið oft missa af flutningi, og önnur skip, sem gætu flutt vörurnar beint, mundu ávalt verða látin sitja fyrir. Það er rétt, þetta getur komið fyrir og er óheppilegt. Og það var einmitt þess vegna, að nefndin vildi að Eimskipafélagið hefði líka strandferðirnar. En að veita einkarétt á samgöngum á sjó, er alveg ótækt. Þess vegna má ekki bera þetta saman við póstmálin eða símamálin.
Eg held að eg hafi nú svarað flestum athugasemdum háttv. þm. (Ó. Br.). Þær voru, eins og vænta mátti úr þeirri átt, skynsamlegar og bygðar á glöggum athugunum. En eg hygg þó, að þær hafi flestar komið fram í nefndinni og verið talavert íhugaðar þar.