08.07.1913
Neðri deild: 6. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 129 í C-deild Alþingistíðinda. (106)
20. mál, verkfræðingur landsins
Benedikt Sveinsson:
Eg verð að taka í sama strenginn og háttv. þm. Dal. (B. J.), að þetta frv. er hreinn og beinn óþarfi, og fer algerlega í ranga stefnu. Það er ástæðulaust að fjölga embættum með eftirlaunarétti, þegar þjóðin vill afnema öll eftirlaun. Það er hreint og beint verið að gera leik að því með þessu frumvarpi, að troða á vilja þjóðarinnar, marg-yfirlýstum og endurteknum. Á nú að gera aðra verkfræðinga að “steingervingum„, eins og það var kallað í gær, þegar talað var um biskupinn? Afleiðingin er augljós. Hinir verkfræðingarnir koma á næsta þingi og heimta konungleg embætti og eftirlaunarétt. Og svo fleiri og fleiri. (Margir þingmenn: Skógræktarstjórinn). Já, skógræktarstjórinn og margir fleiri. Þetta er því með öllu ótilhlýðilegt. Launamálið er alt svo illa undirbúið, eins og háttv. þm. Stjk. (V. G.) hefir tekið fram, að það er ekki vert að hrapa að sérstökum breytingum.
Það var rétt, sem háttv. þm. Dal. (B. J.) tók fram, að það er fjarstæða að líkja landsverkfræðingsstöðunni við jafn margbrotið og ábyrgðarmikið starf og póstmeistarastarfið er. Mig furðar stórlega á því, að in hv. stjórn skuli hafa tekið þá fásinnu upp úr bréfi verkfræðingsins.
Þá er samanburðurinn á byrjunarlaununum hæpinn. Það verður að gæta að því, að hvorki í Noregi né annarstaðar komast unglingar, nýslopnir frá prófborðinu og græningjar Í öllu verklegu, í hæst launuðu embættin. Það eru einungis þaulvanir menn, með margra ára reynslu, sem þau embætti hljóta. Það ætti því helzt við, að bera laun landsverkfræðingsins saman við laun ingeniörassistentanna norsku. Þeir hafa að byrjunarlaunum 1680 kr. og eftir 11 ár 2800 kr.
Nú vill svo til að þessi maður, sem hér er um að ræða, hefir gegnt stöðunni í 8 ár, verður þá ekki annað séð en að 3000 kr. sé fullkomlega hæfilegt kaup handa honum og að sæmilega hafi verið farið með hann.
Hæstv. ráðherra var helzt á þeirri skoðun, að engin nefnd þyrfti að athuga þetta mál. En úr því að launalaganefnd hefir verið kosin, held eg rétt sé að visa því til hennar. Það er svo að sjá af fjárlagafrv. sem hæstv. ráðherra hafi búist við að þetta frumvarp yrði felt, því að þar eru laun landaverkfræðingsins sett til vonar og vara 4000 kr. Það mætti nú reyndar bíða eftir því að heyra, hvað fjárlaganefndin gerir, en helzt vildi eg að frv. yrði lóað sem fyrst, en ef það verður ekki, að því verði vísað til launalaganefndarinnar.