20.08.1913
Neðri deild: 39. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 1520 í C-deild Alþingistíðinda. (1061)
108. mál, strandferðir
Halldór Steinsson:
Háttv. 1. þm. (G.-K. (B. gr.) Sagði, að samgöngumálanefndin hefði ekkert gert til þess að koma Eimskipafélaginu á fót, og háttv. 1. þm. Rvk. (L. H. B.) samsinti því. Eg skal nú ekki, hvernig háttv. þm. fara að koma með þessa fjarstæðu. Nefndin kom fram með þá uppástungu, að leggja félaginu til 400,000 kr. og svo 60,000 kr. til félagsins á hverju ári, til þess að halda uppi strandferðum og 40,000 kr. ári til millilandaferðanna Nefndin hefir því tekið mjög vel í málið og miklu betur en hægt var að búast við, og get eg því ekki betur séð, en að félagið geti vel gengið að þessum kostakjörum, og það færi að fara af því mesti þjóðræknisblærinn ef það gerði það ekki.