20.08.1913
Neðri deild: 39. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 1536 í C-deild Alþingistíðinda. (1070)

75. mál, landssjóður leggi Landsbankanum til 100 þúsund

Ráðherrann (H. H.):

Eg vildi að eins láta það í ljósi, að það væri æskilegt, að þessi ræða ins háttv. 1. þm. G.-K. (B. Kr.) gæti sem allra fyrst komist á prent, til þess að þingmenn fengju tækifæri til að kynna sér þær spánnýju kenningar í peningamálum, sem komu þar fram. Það væri heppilegt ef unt væri að útbýta ræðunni meðal þingmanna áður en 3. umr. þessa máls fer fram. (Björn Kristjánsson: Ekki hefi eg neitt á móti því). Að öðru leyti skal eg vekja athygli á því, að þar sem hann talaði um, að það væru vond kjör, sem bankinn hefði, að borga 2% af veltufé sínu til þess er leggur það fram, þá sýnist það ekki vera svo hræðilegt í samanburði við það sem Aktíubankar verða að borga af sínu veltufé. Þeir borga oft 6–7% af hlutafénu, sem nánast má bera saman við fúlgu þá, sem landssjóður hefir lagt Landsbankanum, og þykir engin ósköp. Landabankinn hefir það fram yfir Aktiubanka, að hann þarf ekki að borga af starfsfé sínu neinn arð, ekkert annað en þessa 2%. Hitt græðir hann. Viðvíkjandi tillögunni um að bankinn borgaði vöxtu af þessari upphæð, sem hér er verið að tala um að leggja honum til, skal eg benda á, að það er í fullu samræmi við það sem heimtað er af öllum öðrum bönkum. Það er ekki nema sjálfsagt, að bankinn borgi vöxtu, ef menn á annað borð treysta landsjóði til að drífa upp þessar 200,000 kr. á hverju fjárhagstímabili handa honum. Að bankinn geti ekki borgað þessa vöxtu, er mér gersamlega óskiljanlegt. Það hlýtur að liggja í inum nýju kenningum, sem háttv. þm. kom með. Hann veit þó sjálfsagt fullvel, að Landsbankinn hefir eins og aðrir bankar fleira fé, sem hann getur grætt á, heldur en eigið veltufé sitt. Hann hefir líka í veltu innlánsfé manna, og þar að auki hefir hann tekjur af »provision« og innheimtu á skuldum, og ýmislegt fleira, sem getur numið talsverðri upphæð. Það er ekki verra fyrir bankann að borga landssjóði 41/2% vexti, heldur en að borga það mönnum, sem leggja fé inn í bankann. Annars væri fróðlegt að heyra, hvernig landið, sem nú ekki hefir tekjur umfram útgjöldum, á að útvega tekjur til þess að geta lagt bankanum 200 þús. kr. á hverju fjárhagstímabili.

að gera það með nýjum skattaálögum, eða með sífeldri skuldastofnun?