20.08.1913
Neðri deild: 39. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 1538 í C-deild Alþingistíðinda. (1072)

75. mál, landssjóður leggi Landsbankanum til 100 þúsund

Valtýr Guðmundsson:

— Eg vil leyfa mér að skjóta fram þeirri athugasemd, að þegar það kom til umræðu í nefndinni, hvort greiða ætti vöxtu af tillagi landssjóðs til Landsbankans, þá kom mönnum ekki saman um það atriði. En eg skal minna á aðra hugmynd, sem kom fram í nefndinni og gæti verið eins hentug, að áskilja að Landsbankinn greiddi ákveðinn hluta af arði til landssjóðs. Mér skilst það vera rétt, að bankinn greiði eitthvað fyrir þetta, alveg eins og hlutabankar greiða hluthöfum árlegan arð. Íslandsbanki greiðir 10% af arðinum í varasjóð, en skiftir hinu upp á milli hluthafanna. Nú er veltufé Landsbankans 11/2 millíón kr., 750 þús. kr. í seðlum og viðlíka mikið í varasjóði. En svo hefir hann líka 2 milliónir, sem landssjóður hefir lagt honum til. Nú hugsa eg mér það þannig, að bankinn greiði landssjóði hlutfallslega af arðinum, en hitt gangi til bankans sjálfa. Og með því móti álit eg bankanum vel borgið. Hann fær þá talsvert af arðinum, ef hann greiðir að eins arð af 2 milí. í landssjóð. Það getur vel verið að þetta verði eins hentugt eins og að ákveða einhverja fasta vöxtu og eg hygg jafnvel að landssjóður geti haft meiri arð með þessu móti, því að eg ímynda mér að bankinn gefi meiri arð en 41/2%. Það hlýtur að vera sérstakt óhapp ef arðurinn verður undir því. Eg skýt þessu að eins fram fyrir þá sem eru á móti því fyrirkomulagi, sem stungið hefir verið upp á, ef þeim þeim þætti þetta geðfeldara og mér hefir heyrst það á háttv. 1. þm. G.-K. (B. Kr.) að hann væri þessu ekki mótfallinn. Þá væri bankinn alveg eins settur að þessu leyti eins og Íslandsbanki. Hann hefði þá 31/2 millíón kr. í veltufé. sem væri að skoða sem hlutafé.