20.08.1913
Neðri deild: 39. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 1548 í C-deild Alþingistíðinda. (1077)
75. mál, landssjóður leggi Landsbankanum til 100 þúsund
Framsögum. (Björn Kristjánsson):
Háttv. þm. S.-Þing. (P. J ) þótti formið á þessu frumv. undarlegt, þar sem ekki væri tekið fram, hvort þetta fé ætli að vera bankans eign, eða landssjóðs. Eg held, að nefndin hafi skilið svo, að það ætti að afhendast sem veltufé, eins og seðlarnir, sem voru afhentir þannig, til þess að bankinn hefði þeirra sem bezt not. Að þetta tillag sé ómynd og beri vott um, að bankinn sé ósjálfbjarga, kannast eg ekki við. Ekki var það álitið svo á þingi 1907. Þá sagði hæstv. ráðherra svo (Alþt. bls. 2482):
»En eg álít rétt, að benda á, að það sem hér er farið fram á, er í rauninni ekkert annað en lántaka fyrir landssjóð í sérstökum tilgangi«. Hann skoðar svo, að það hvíli alls ekki á bankanum, að sjá um þetta lán, heldur á landinu. Enn fremur segir hann á næstu síðu:
»Væri hin aðferðin höfð, að landið tæki í þessu skyni lán í einu lagi, og afhendi Landsbankanum peningana til meðferðar, gæti hugsast, að lánið fengist með lægri vöxtum, en 41/2 %, og fengi bankinn þá þeim mun ódýrara starfsfé«.
Þetta sýnir, að hæstv. ráðherra hefir verið á því þá, að lánið hlyti að lenda á landssjóði, og hví er þá eigi inu sama máli að gegna nú. Sömu skoðun hefir víst háttv. þm. S.-Þing. (P. J ) haft þá, þótt eithvað hafi glapið fyrir honum síðan. Framsögum. fjárlaganefndarinnar, sem þá var Jón heitinn frá Múla, sagði svo við 3. umr.:
»Svo þýðingarmikið er það mál, sem vér höfum ráðið til lykta í dag (Íslandsbanki), og af þessum ástæðum studdi eg það mál, sem nýlega var bundinn endi á í þessari deild. Og eg mundi engu síður styðja að því, að auka starfsfé Landsbankans, ef eg sæi, að það væri lagt með góðu móti. Eg vona að augu manna opnist svo til næsta þings, að þeir sjái, að svo búið má ekki standa, að því er Landsbankann snertir.
Eg sé ekki að vér getum bjargast með öðru móti út úr þessu ástandi, en með því, að búa svo um, að Landsbankinn geti í raun og veru fengið meira fé inn í landið. Lántökur hans eins og hingað til nægja ekki«.
Það var sem sagt ákveðin stefna þingsins þá, að styrkja bankann, og hæstv. ráðherra áleit alveg sjálfsagt, að landssjóður legði fé til þess.
Viðvíkjandi því, að ekki sé vert að taka þetta fé úr landssjóði vegna þess, að þá geti landið sjálft ekki lánað neitt lengur, skal eg segja frá dálitlu dæmi um landssjóðinn sjálfan, sem bankarekanda. Sýslunefnd ein hafði beðið Landsbankann um 7 þús. kr. veðdeildarlán, og höfðum við samþykt að veita það með mjög aðgengilegum kjörum. En þegar til kom, vildi sýslunefndin ekki taka lánið, heldur bjóst við að fara til 3. bankana, nefnilega þingsins eða landssjóða, til þess að fá lánið með ofurlítið (1/2%) ódýrari vöxtum. Þetta sýnir ljóslega, að landssjóður er beinlínis keppinautur bankans, sem lánsstofnun, þar sem hann lánar fé út fyrir 4–41/2%, ef hann getur til almennra fyrirtækja sem eiga að borga sig.
Eg álít nú, að það ætti fult svo vel við, að þingið neitaði þess konar lánum yfir höfuð, en styrkti heldur Landsbankann til að geta veitt þau. En nú á sýsla þessi á hættu að fá ekkert hjá bankanum heldur, þegar 3. veðdeild er að verða á þrotum. Bankinn stendur auðvitað við það sem hann hefir lofað að lána, ef þess er leitað, meðan hann hefir fé til þess. Svona er nú alt þetta óeðlilegt, í stað þess að landið styrki sinn banka, svo að hann geti fullnægt þörfum manna og kröfum. Að draga þessar umbætur til næstu fjárlaga, er sama sem að setja alt í kaldakol, og eg er hræddur um, að margur mundi kveina í næstu 2 árin, ef það yrði gert. Og að fyrirkomulagið er ekki ið sama og erlendis, kemur blátt áfram af því, að við förum ekki að eins og allir aðrir í heiminum. Annarstaðar er veltufé lagt fram, gegn einhverjum hluta ágóðans, en hér er ekki þannig farið að, og þess vegna er grundvöllurinn bygður á sandi.
Um það, hvar eigi að taka þetta fé, get eg fyrst og fremst v erið samdóma háttv. þingm. Dal. En ef í harðbakkana slær með fjárl., svo að ekki verður hægt að koma því að þar, þá hefir einhverntíma verið ráðist í meira stórræði en þetta. Að minsta koati þegar bætt var 30% á alla tolla, til þess að vega á móti tekjuhallanum. Nú er nauðsynin þó enn meiri en þá. Því að ef þetta mál fær ekki greiða afgreiðslu hér á þinginu, því verður bankinn að hætta að veita lán, einnig veðdeildarlán, því þá verður honum um megn að kaupa veðdeildarbréf.