20.08.1913
Neðri deild: 39. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 1553 í C-deild Alþingistíðinda. (1080)

75. mál, landssjóður leggi Landsbankanum til 100 þúsund

Framsögum. (Björn Kristjánsson):

Það getur verið að bankinn þyldi, að bíða eftir 200 þús. kr. í 2 ár. En vill háttv. þm. þá sanna mér það, að næsta fjárlagaþing vilji veita þetta fé? Það getur hann ekki, og þess vegna verður bankinn að taka sína stefnu nú þegar, því að hann getur ekki bygt á öðru en því, ef þingið vildi gefa þá yfirlýsingu, að það ætti að veita þetta fé.

Það, sem háttv. þm. sagði um Landmandsbankann, að það gerði ekki svo mikið, þótt Landsbankinn skuldaði honum, skal eg ekki segja annað en það, að — eg hygg að bankanum detti ekki í hug að fá sér lán þar til þess að setja hér í löng lán; það væri óðs manns æði, enda sáu menn, hvernig bankinn var stadddur 1907, einmitt af því að svo var gert. En til skjótra viðskifta er ekkert á móti því að taka slík lán, enda er það nú gert.

Eg skal svo ekki segja meira. Eg neyddist að eins til að drepa á þessi atriði, af því að hér hafa orðið nokkuð skarpar umræður.