21.08.1913
Neðri deild: 40. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 1588 í C-deild Alþingistíðinda. (1102)

38. mál, stjórnarskipunarlög

Kristján Jónsson:

Eg þykist þurfa að standa upp sakir þess, að í einni br.till. nefndarinnar hefir Verið komið fram með nýmæli eitt, snertandi kjörgengi til Alþingis. Í frumv háttv. þingm. Dal. (B. J.) hefi eg ekki fundið neitt ákvæði í þessa átt, en hér í br.till. ,nefndarinnar er farið fram á, að yfirdómendur skuli ekki hafa kjörgengi. Þetta er nýmæli hér á landi, því að það hefir verið svo frá aldaöðli, að dómarar hafa átt setu á Alþingi. Þannig Var það á Alþingi inu forna alla tíð frá 930–1800 með lögmennina, og síðar með lögmenn og héraðsdómara, og á löggjafarþingunum 1845–1875 sátu dómendur, yfirdómendur og aðrir dómarar, þegar þeir voru til þess kosnir eða nefndir. Og síðan 1875 hafa þeir haft óskerðan rétt til þingsetu jafnt hverri annari stétt manna. Þetta sem nú er farið fram á að lögleiða, er því vissulega nýmæli og nýlunda hér á landi, og virðist vera nokkuð undarlegt, að einmitt þegar kosningarréttur og kjörgengi er alment fært mjög mikið út, þá skuli um leið vissir menn vera sviftir þeim rétti, sem þeir hafa haft alla tíma. Nú er það svo, að allir karlmenn, sem komnir eru til vits og ára og hafa óflekkað mannorð, eiga að vera kjörgengir, og konur líka. Að eins eru það einir þrír menn, sem vegna stöðu sinnar eru sviftir þeim rétti, sem allir aðrir borgarar landsins hafa, eru rændir almennum borgaralegum réttindum. Þetta er ið mesta misrétti. Hvernig stendur á því, að ekki hefir um leið verið stungið upp á, að þessir menn væru leystir frá borgaralegum skyldum og kvöðum, sem þeir hafa hingað til þurft að bera? Það hefir gleymst. En hverjar eru nú ástæðurnar? Eg get tæplega búist við því, að þetta sé bygt á, því, að það sé til spillingar þings, að yfirdómendur sitji þar, eða að menn þessir séu lakari hæfileikum búnir til að sitja á þingi, heldur en aðrir. Eg býst við, að þeir séu yfir höfuð ekki lakari hæfileikum búnir en aðrir menn, eða yfirleitt lakari en fólk er flest, svo að ástæðan getur ekki verið sú; að þeir spilli þinginu.

Þá er spurningin um það, hvort alþingisseta sé í ósamræmi við embætti þeirra, eða ósamboðin stöðu þeirra, svo, að hún sé til spillingar dómunum. Varla býst eg við að því verði jákvætt á þessum stað. Enda væri það alveg ný kenning, því að frá því er landið bygðist, hefir það ekki verið trú manna. Dómendur hafa setið á þingi, ef kjósendum eða konungi hefir þóknast að kveðja þá til þess. Þetta á ef til vill að vera til þess að tryggja sjálfstæði þeirra í embættunum. En eg hygg, að það nái ekki tilgangi sínum á nokkurn hátt. Það er ekki farið fram á að banna þeim að hugsa, lesa eða tala eða skrifa um pólitík, og ekki á að svifta þá kosningarrétti. Því er það ekki gert? Eg held að það gæti stafað eins mikil hætta af þessu fyrir þá eins og þó að þeir hefðu kjörgengi. Yfir höfuð get eg ekki séð, að nein frambærileg ástæða sé til þess að svifta þessa þrjá menn eina þeim réttindum, sem allir aðrir borgarar þessa lands eiga að hafa. Það er ekki frekari ástæða til að taka þessa embættismenn út úr, fremur en aðra, t. d. sýslumenn, bæjarfógeta, umboðsmenn eða presta. Hvaða frekari ástæða getur verið til að banna dómurum að taka þátt í stjórnmálum fremur en prestum, sem eiga að prédika guðs orð? Og vitanlega er eigi snefill af ástæðu fyrir því að svifta yfirdómendur kjörgengi, en láta undirdómara, sýslumenn og bæjarfógeta halda því. Hér er misréttið svo augljóst, og ranglætið kemur svo bert fram, að það átti ekki að geta dulist jafnvel nefndinni.

Annars er stefna nefndarinnar, að því er þetta snertir, alveg óskiljanleg, nema því að eins, að ákvæðið (réttarsviftingin) væri látið ná til allra þeirra manna, er hafa á hendi störf fyrir ið opinbera, fara með almenningasýslan.

Þetta á víst að vera eins dæmi fyrir þetta land. Eg veit ekki betur en að dómendur hafi kjörgengi til þings í öðrum löndum, svo sem í Svíþjóð, Noregi og Danmörku, þó að þess sé ekki neytt mikið þar vegna annara ástæðna, sem sé þeirra, að yfirdómendur hafa þar eigi tíma afgangs til að gegna öðrum störfum en dómstörfunum.

Eg skal svo ekki fara um þetta fleiri orðum á þessu stigi málsins, en að eina taka það fram aftur, að eg get ekki séð, að það sé á nokkurn hátt réttmætt eða viðeigandi, að svifta þessa þrjá menn þeim rétti, sem allir aðrir fullveðja menn á landinu eiga að hafa.