21.08.1913
Neðri deild: 40. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 1605 í C-deild Alþingistíðinda. (1106)
38. mál, stjórnarskipunarlög
Einar Jónsson:
Eg verð að játa það, eins og aðrir háttv. þm. hafa þegar lýst yfir, að eg hefi haft stuttan tíma til undirbúnings eftir að þessu frumv. var útbýtt. En eg verð samt að minnast á einstök atriði, sem eg hefi getað kynt mér til hlítar, af því, að eg er í sumu með meiri hlutanum og í sumu með minni hlutanum.
Um ríkisráðsákvæðið eru nú báðir partar orðnir sammála, og þykir mér vænt um það, því að eg hygg að það sé sigurvænlegra en ósamþykkið, sem annars myndi eiga sér stað, jafnt og verið hefir að undanförnu í því atriði, og búast mætti við að yrði sama þrætueplið áfram milli konungs annars vegar og Íslendinga hins vegar.
Þá er það, hvort ráðherrar skuli vera einn eða þrír. Eg er nú sem fyr ánægðari með það, að þeim megi fjölga með sérstökum lögum, heldur en það ákvæði sitji fast í stjórnarskránni, og mun fylgja því.
Um kosningarréttar-ákvæðin er það að segja, að eg er þar hlyntari meiri hlutanum í því, að einhver takmörk séu sett fyrir því, að ekki fái allir strax kosningarréttinn takmarkalaust, sem eru 25 ára, hvort sem þeir t. d. hafa óflekkað mannorð eður eigi. Það er ekki rétt heldur, sem sumir hafa sagt, að menn 15 þurfi að bíða í 15 ár, þ. e. alt aldurs takmarkið frá 25–40 ára, þegar hámark aldursins lækkar um 1 ár strax og áfram niður eftir. Það er því ekki nema um 71/2 ár að ræða, því að þeir mæta kosningarréttinum á miðri leið. En hitt finst mér skiljanlegt, að þeir sem rosknir eru, séu færari um að kjósa en þeir sem hlaupa til þess, án þess að hafa nokkurn undirbúning í málunum. Ef þetta ákvæði verður nú lögleitt, þá geta þeir notað tímann til undirbúnings, til þess að þeir verði þá því færari, þegar þar að kemur að kosningarréttur er fenginn.
Háttv. þm. N.-Ísf. (Sk. Th.) fáraðist um það, að veita ætti að eins fertugum körlum og kerlingum kosningarréttinn. En eg er honum ekki samdóma um þær nafngiftir, að allir fertugir séu sjálfsagðir í karla og kerlinga röð. Hann er sjálfur eldri en fertugur, og vil eg þó ekki kalla hann karl, og þó að einhver sé nefndur svo, þá ætti ekki að liggja í því nein lítilsvirðing. Þá mætti eins vel kalla 25 ára fólk stelpur og stráka og það er ekki betra.
Þá er eg á móti því, að Ed. sé öll hlutfallskosin. Eg vil að þeir séu að eina 6, sem þannig eru kosnir, en Nd. kjósi 8 til þeirrar deildar, eins og nú á sér stað, og færði eg til ástæður fyrir þeirri skoðun minni 1911. Það er ósannað, að þörf sé á þessu mikla íhaldi, og þótt það sé ekki víst, að t. d. í Ed. veljist tómir gamlir embættismenn og ungir þjösnar — eg vil biðja menn að muna það, að eg notaði ekki fyrstur þetta orð — þá er það víst, að þangað myndu veljast gamlir embættismenn, einkum úr Reykjavík, og endurtek eg enn, að eg hefi enga tröllatrú á þess konar vali.
Að því er snertir yfirdómarana, er eg ekki með því ákvæði að svifta þákjörgengi, því að það má ekki skerða svo rétt neins manns, sem er borgari þjóðfélagsins, nema þá með því sem háttv. þm. Borgf. sagði, að undanþiggja þá um leið sköttum og skyldum. Eg skil ekkert í því, að vilja útiloka þannig frá kjörgengi að eina 3 — skrifum og segjum þrjá — heiðvirða borgara, sem auk þess eru líklega flestum færari til að neyta þess. En aðallega verð eg að halda því fram, að þessi réttindi séu jöfn fyrir alla.
Ýmsir halda því fram, að konungkjörnir þingmenn eigi ekki að hafa atkvæðisrétt um ráðherraval, en það nær ekki nokkurri átt. Það væri herfilegt misrétti meðal þingmanna, að þar hefðu ekki einnig allir sama rétt. Í þinginu hafa allir jafna ábyrgð á gerðum sínum og hví þá eigi allir sama rétt, sem löglega eru þar að starfi kvaddir?
Um athugasemd hv. 1. þm. Rvk. um það, að þetta frumv. hefði átt að koma frá stjórninni, má þræta. Það hefði ekki átt illa við, að það hefði komið þaðan, en þá hefði það líklega verið drepið, eins og flest þau frumvörp, sem frá þeirri hendi hafa komið, en það vil eg ekki að gert verði nú, heldur vil eg að málið verði afgreitt frá þessu þingi.
Að öðru leyti skal eg ekki þreyta deildina með löngum ræðum, heldur sýna afatöðu mína við atkvæðagreiðsluna og láta þar við nema staðar.