21.08.1913
Neðri deild: 40. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 1613 í C-deild Alþingistíðinda. (1109)
38. mál, stjórnarskipunarlög
Matthías Ólafsson:
Á öllum þingmálafundum, sem haldnir hafa verið í Vestur-Ísafjarðarsýslu, hafa komið fram óskir um að frumv. til stjórnskipunarlaga yrði samþykt á þessu þingi, en með því skilyrði, að ekki væri sett í það neitt, það er gæti orðið því að falli, er til úrslita konungs kæmi. Það er með öðrum orðum, að ekki skyldi leggja út í þá tvísýnu að fella úr orðin í ríkisráði. Nú hefir verið fundin upp ný leið til að sneiða hjá. þessu skeri. Eg get að vísu ekki sagt, hvernig kjósendur mínir mundu lita á þetta atriði nú, en eg fyrir mitt leyti felli mig vel við þessa leið, sem valin hefir verið, og hygg, að nú þurfi ekki að óttast að konungur synji frumvarpinu staðfestinnar. Þetta er að vísu að nokkru leyti afturhald, en þó ekki svo leitt afturhald eins og það hefði verið að þurfa að taka upp orðin »í ríkisráði« óbreytt.
Eg felst á að málið hefir grætt talsvert á meðferðinni í nefndinni. Og ef meiri og minni hluti nefndarinar hefði komið sér betur saman, þá hefði það komizt í viðunanlegt horf, svona fyrst um sinn. Eg er eiginlega á beggja máli, það er að segja, sumpart á máli meiri hlutans og sumpart á máli minni hlutans.
Eg skal nú minnast á, að hverju leyti eg er samdóma og ósamdóma hvorum hlutanum um sig. Eg felst á tillögur meiri hlutans við 5. gr., sömuleiðis við 6. gr. og einnig við 8. gr. En þegar kemur að 9. gr., þá get eg ekki lengur orðið samferða meiri hlutanum, þar sem hann ætlast til að öll Ed. verði kosin hlutfallskosningum um alt land. Eg er á móti þessu af þeirri ástæðu, að það mundi raska kjördæmaskiptingu landsins. Að vísu heyrði eg háttv. 1. þm. Rvk. (L H. B.) taka fram í áðan og neita þessu. Á landinu eru 8 tvímenningskjördæmi, og það vakir þá líklega fyrir nefndinni að gera þessi kjördæmi að einmenningskjördæmum. Það hygg eg að verði aldrei vinsælt. Eg er hræddur um, að þau kjördæmi mundu þá taka of lítinn þátt í landsmálum. Hitt væri annað mál, að skifta þeim í tvo hluta. Reykjavík ætti t.d. að vera tvö kjördæmi. Sömuleiðis er eg hræddur um, eins og aðrir, sem hafa tekið til máls, að þetta fyrirkomulag mundi leiða til þess að að Reykvíkingar sætu hér um bil eingöngu í Ed. Í Reykjavík mundu listarnir verða búnir til, því að þar sitja miðstjórnir flokkanna, og þær mundu ráða því, hverjir yrðu efstir á listunum.
Þá kem eg að breytingartillögum nefndarinnar Við 10 gr. Þar er meðal annars farið fram á að stytta kjörtímann um tvö ár. Meðan við höfum þing ekki nema annaðhvert ár, held eg að það sé vanráðið. Eg efast um að mjög margir þingmenn séu meir en svo búnir á tveim þingum að komast almennilega inn í málin, svo þeir geti notið sín fyllilega. Að vísu er það satt, að sumir gera það þegar á 1. ári og kemur þá strax reynsla fyrir, hvort þeir eru til nokkurs hæfir eða ekki, en svo er ekki um alla. Eg álít að það hefði verið miklu nær að ákveða þingsetuna 8 ár. Um kosningarréttinn er eg samdóma meiri hlutanum og hygg að hann hafi þar komist að mjög heppilegri niðurstöðu. Sama er að segja um kjörgengið.
Þá kem eg að 10 lið breytingatillagna nefndarinnar. Er eg henni bar ósamdóma og mun eg alls ekki greiða atkvæði með frumv., sem slíkt ákvæði stendur í. Það er sem sé um að skylda utan þjóðkirkjumann, sem eigi vill greiða fé til kirkjunnar, til að gjalda það háskólanum. Mér finst vera gengið svo á persónulegt frelsi manna með þessu ákvæði að þegar menn eigi vilja borga til eins, skuli þeir neyddir til að borga til annars. Það er eins og þetta eigi að vera refsing á mennina. En það er svo mikið misrétti í þessu ákvæði, að það með engu móti má standa í stjórnarlögum Íslendinga.
Út af kosningafyrirkomulaginu til Ed. skal eg geta eins, sem kom fram á fundi í Vestur-Ísafjarðaraýslu. Þar komust menn að þeirri niðurstöðu í þessu efni, að það mætti taka 8 af þeim elztu, sem kosnir hefðu verið til neðri deildar, og setja í efri deild, en hinir skyldu vera kosnir með hlutfallskosningu.
Get eg tekið undir með háttv. 2. þm. S.-Múl. (G. E.), að eg get hvoruga tillöguna aðhylst, hallast eg þó fremur að meiri en minni hlutanum. Býst eg við, að sumum þyki undarlegt, að eg greiði atkvæði með tillögum minni og meiri hlutans á víxl. Eg ákveð ekki að svo stöddu, hvort eg greiði atkvæði með þessu frumvarpi út úr deildinni, en eg mun greiða því atkvæði til 3. umræðu í von um að það batni eitthvað í meðferðinni.