22.08.1913
Neðri deild: 41. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 1641 í C-deild Alþingistíðinda. (1116)
38. mál, stjórnarskipunarlög
Framsögum. (Jón Magnússon):
Eg get verið stuttorður, sérstaklega vegna þess að flestum mótmælum hefir þegar verið svarað af háttv. formanni nefndarinnar og af háttv. 1. þm. S-Múl. (J.Ól.)
Eg er þakkiátur hæstv. ráðherra fyrir inar góðu undirtektir hans undir tillögur nefndarinnar, og svo fyrir það, að hann vill styðja af því að þetta mál nái fram að ganga eftir því sem til í vinst.
Eins og eg tók fram í upphafi, eru aðallega tvö ágreiningsatriði milli meiri og minni hluta nefndarinnar. Er annað þessara atriða ekki eins þýðingarmikið til frambúðar, nefnilega þetta hvort fjölga eigi kjósendum alt í einu eða smátt og smátt. Hitt er um skipun efri deildar eða efri málstofu eins og háttv. 1. þm. S.MúI. (J. Ól:) vildi kalla það. Eins og kunnugt er, var það Jón Jónsson frá Múla, sem fyrstur kom fram með tillöguna um, að fjölga kjósendum smátt og smátt. Þessari tillögu, sem mörgum þótti þá nýstárleg, var samt vel tekið. Að þingið ekki samþykti tillöguna þá, hygg eg stafa af því, að það vár ekki búið að átta sig. Nú tók meiri hluti nefndarinnar hana upp óbreytta, að því viðbættu að þetta næði til allra, en ekki einungis til kvenfólksins. Aðalástæðan til þessar aðferðar er sú, að margir eru smeykir við að fjölga kjósendum alt í einu um alt að 2/3 hlutum, þannig að núverandi kjósendur yrðu 1/3 hluti. af öllum kjósendum eftir fjölgunina. Eins og menn vita, hefir reglan yfirleitt verið sú hjá öllum þjóðum að láta kjósendum fjölga smátt og smátt, taka ekki afar stór stökk. Það sem greinir aðallega á milli meiri og minni hlutans er það, hvort ekki megi fara ofurlítið varlega í þessa breytingu. Hitt, sem líka hefir sætt mótmælum af hálfu allmargra deildarmanna, er það að skipa þingið eina og meiri hluti nefndarinnar hefir farið fram á. — Um það, talaði hv. 1. þm. S.-Múl. (J. Ól.) mjög ljóst og greinilega, og hefi eg litlu þar við að breta. Eg skal þó ofurlitla ögn víkja að því, sem einstakir menn hafa sagt um þetta mál, en mun verða stuttorður, því að eg get ekki ímyndað mér að það ráði atkvæðum manna, þótt eg færi að ræða þetta ítarlega.
Háttv. þm. Dal. (B. J.) gat þess, að þessi deildarskipun, sem meiri hlutinn fer fram á, gæfist ef til vildi ekki vel og yrði ekki til að stjóra neitt niður, engin seglfesta, heldur þvert á móti. Inn háttv. þm. hefir breytt skoðun í þessu efni frá í fyrra, því að þá kallaði hann þetta stjóra, jafnvel þó ekki væri öll deildin kosin hlutbundnum kosningum um land alt. — Hann óttaðist óróa og óánægju og aðrir voru að tala um sprengikúlur, ef kjósendafjölgunin kæmi ekki öll í einu. Eg get ekki séð að það geti valdið óánægju, þótt það dragist ofurlitið að allir fái kosningarrétt, þegar það er viðurkent í aðalatriði, að þeir eigi að fá hann, og hér er ekki nema stutta stund að bíða. Eg skal að eins benda á það, þótt það komi málinu ekki mikið við, sem háttv. framsögum. minni hlutans (B. J.) var að tala um, að engum einum er óréttur gerður, þegar þetta gengur jafnt yfir alla, og skal eg ekki orðlengja um það.
Að því er hæstv. ráðherra mintist á, að umboðsmanni ráðherra væri ekki ætlað að mæta í þinginu í fjarveru ráðherra, þá mun nefndin taka það atriði til íhugunar.
Þar sem háttv. þm. Borgf. (Kr. J.) talaði um, að það væri ekki rétt að svifta dómara, ,sem engin umboðsleg störf hafa, kjörgengi, þá hefir því verið svarað, en en skal að eina bæta því við, að það er haft að orðtaki á Bretlandi, að ekkert þingmannsefni geti sloppið út úr kosningabaráttu með óskertu mannorði. Ef svo er á Bretlandi, ætli þó mætti ekki miklu fremur segja. eitthvað líkt hér? og það var einmitt það sem við vildum forða dómurunum frá, að komast inn í slíka baráttu.
Háttv. 1. þm. Eyf. (St. St.) hafði það sérstaklega á móti hlutfallskosningunni, að þá yrðu kosnir menn, sem ekki væru kunnugir landsháttum á einstökum stöðum. Eg held, að það yrði ekki svo miklu hættara við því heldur en með því fyrirkomulagi, sem nú er. Hann virtist halda því fram, að það væri ekki líklegt að fólk, sem kallað er á bezta aldri, væri færara en ungt fólk. Þetta er ekki hægt að sanna, en hitt mun óhætt að segja, að það er alment álitið, að ef menn eru á annað borð heilbrigðir, þá séu menn færastir hvað hæfileika snertir á aldrinum frá 40–50 ára.
Sami þingm. og fleiri voru óánægðir með að stytta kjörtímann niður í 4 ár. Viðvíkjandi því skal eg láta mér nægja að taka það fram, að þetta er ekkert aðalatriði hjá nefndinni.
Þar sem háttv. þm, N.-Ísf. (Sk. Th.) talaði um, að hann áliti rétt að hafa ráðherrana fleiri, þá getur það ósköp vel orðið samfara þessari stjórnarskrárbreytingu. Ekki er annað en að láta sérstök lög fylgja um það, þegar þessi stjórnarskrárbreyting verður samþykt í seinna skiftið. Eg álít ekki rétt, að láta konung einn ráða tölunni, heldur ætti þingið að segja til um það.
Þá var sami háttv. þingm. óánægður með það, að embættismönnum mætti víkja frá embætti án dóms. Nú, er það svo, að það eru einungis dómarar, sem engin umboðsstörf hafa á hendi, sem ekki má víkja frá án dóms. Eg get ekki séð, að það sé neitt athugavert við þetta, því að eg imynda mér að ef ráðherra misbeitti þessu, þá yrði það verst fyrir hann sjálfan. Enda tel eg það ekki óbætilegt böl fyrir mann að vera settur frá embætti, ef nokkur dugur er í honum, en ef enginn dugur er í manni, því á að setja hann frá embætti.
Sami háttv. þingmaður talaði um, að það væri betra að eiga það á hættu að þingið hlypi á sig, heldur en að framgangur góðs máls hindraðist um lengri tíma. Þar er eg ekki á sömu skoðun, því að eg álít að það sé að öðru jöfnu meiri skaði að vont mál gangi fram, heldur en hitt, að gott mál bíði. Sé um reglulega gott mál að ræða, þá mun það sigra áður en langt líður.
Háttv. þm. Ak. (M. Kr.) talaði um, að það riði ekki á að flýta þessu máli. Nei, maður getur að vísu sagt, að það sé ekki alt undir því komið, að það gangi fram á þessu þingi. Ef inn háttvirti í þingmaður gæti sýnt mér fram á, að eftir einhverju væri að bíða, þá skyldi eg vera honum fullkomlega sammála, en ef hann getur ekki sýnt mér það, þá verð eg að álíta réttast að koma málinu sem fyrst áfram. Hann sagði, að réttast væri að bíða þangað til allir yrðu sammála. Það væri vitanlega bezt, ef nokkur von væri til þess að það yrði á fyrirsjáanlegum tíma, en eg er hræddur um að það séu ekki mikil líkindi til að menn verði það nokkurn tíma. Ið eina, sem hægt er að gera sér von um, er það, að þorri manna verði nokkurn veginn ánægðir með breytinguna í heild einni, þótt margir kunni að vera miður ánægðir með sum einstök atriði.
Hv. 2. þm. S.-MúI. (G.E.) fór nokkuð út í aðra sálma en beint við koma þessu máli. Hann var eins og margir fleiri að tala um að við þetta skipulag á Ed. væri hætt við að margir Reykvíkingar kæmust að. Eins og háttv. 1. þingm. S.- Múl. (J. Ól.) sagði, ætti það ekki að vera svo hættuleg grýla. Það má benda á, að þótt hér í deilinni sitli nú og hafi setið margir Reykvíkingar, þá er það ekki hlutbundnum kosningum að kenna.
Annars verð eg að segja inum háttv. þingm. það, að það var óheppilegt dæmi, sem hann tók, þegar hann talaði um hvað mikið hefði verið lagt til hafnargerðarinnar hér í Reykjavík.
Landið hefir ekki lagt meir til hafnarinnar hér en til annara hafna á landinu hlutfallslega. Til hafnarinnar hérna hefir verið lagt til það minsta, 1/4 af kostnaðinum, sem annarstaðar hefir verið lagt til. Sumstaðar hefir verið lagður til 1/3 af kostnaðinum, þétt hitt virðist máske mega telja aðalregluna. Þetta er því óheppilegt dæmi, sem þingmaðurinn kom með.
Hvað það snertir, sem háttv. 2. þm. S.-Múl. sagði, að eg hefði í járnbrautarmálinu haldið því fram, að Reykjavíkurhöfnin mundi sligast, ef járnbrautin kæmist ekki á, — þá er þetta ekki rétt.
Eg hefi aldrei haldið því fram sem minni skoðun. Eg sagði það að eina, að þeir menn væri til, sem þetta hefðu látið í ljós, en eg tók það beint fram, að þetta væri ekki mitt álit. Mér þykir rétt að taka þetta fram, að leiðrétta þennan misskilning, þó að það komi ekki þessu máli við.
Háttv. þingm. V.-Ísf (M. Ó.) talaði á móti því ákvæði, að þeir sem væru fyrir utan þjóðkirkjuna, en ekki í neinu öðru viðurkendu kirkjufélagi, skyldu gjalda þau gjöld, sem þeir annars hefðu átt að gjalda til þjóðkirkjunnar, til háskóla Íslands eða til einhvers styrktarsjóðs við þann skóla. Nefndin eða meiri hluti nefndarinnar áleit nauðsynlegt að setja inn þetta ákvæði, til þess að forðast það, að menn sem annam heyrðu þjóðkirkjunni til, afneituðu henni til að komast hjá að gjalda neitt til hennar. Til þess að menn gætu ekki óráðvandlega komið sér undan gjaldinu, áleit nefndin nauðsynlegt að setja þetta ákvæði.
Háttv. 1. þ.m. Árn. (S. S.) vur á sama máli og háttv. þm. Dal. (B. J.) um það, að tilgangurinn með efri og neðri deildarskipuninni gæti mistekist, það mundu veljast eða gætu valist mestu angurgaparnir til efri deildar. Það er annara undarlegt, að nú koma menn með alt aðrar ástæður gegn þessu en áður. Áður var ástæðan sú, að með þessari skipun yrði of mikið íhald eða afturhald í þinginu, en nú halda menn og eru hræddir við, að þessi skipun verði til þess gagnstæða. Eg neita því alls ekki, að það geti komið fyrir að einhver angurgapi veljist til efri deildar, en trúlegt þykir mér það ekki að það verði fremur fyrir það, þótt tillögur nefndarinnar verði samþyktar að þessu leyti.
Háttv. 1. þm. Árn. sagði líka, að til efri deildar mundu kosnir gamlir upp gjafa-embættismenn úr Rvík, og ekki er nú trúlegt að þeir mundu valda miklum gauragangi. Þessi háttv. þingmaður er annars oft að leggja til embættismannanna. Hvað er hann sjálfur? Auðvitað ekkert annað en embættismaður, landsembættismaður, ég hygg mjög nýtur. Og ekki er hann verri fyrir það, þótt hann væri í Reykjavík. Eg á von á því, að hann eftir vel unnið starf, njóti í góðri elli eftirlauna sem »einn vel meriteraður« embættismaður.
Athugasemdir háttv. þingm. Sfjk. (V. G.) eru sumar máske á rökum bygðar, og mun nefndin taka til greina þær af þeim, sem þannig er háttað. Sumar eru aftur fjarri sanni En síðar mun verða tími til að tala um þær, er væntanlegar breytingartillögur koma frá honum.
Að því er snertir innborinna manna rétt, þá virtist nefndinni ekki nauðsyn, að gera hann að skilyrði fyrir kosningarrétti og kjörgengi, nóg að binda það við íslenzkan borgararétt.
Um flutning embættismanna, sé eg ekki ástæðu til að sakna ákvæðisins, er heimilar stjórninni að flytja menn úr einu embætti í annað. Fyrst og fremst mun það varla hafa komið fyrir að menn væru nauðugir fluttir úr einu embætti í annað, og þá virðist varla ástæða til að hafa slíkt ákvæði í stjórnarskránni. Ef það yrði ofan á, sem líklegt er, að eftirlaun embættismanna, yrðu afnumin, þá yrði ekki um það að velja fyrir embættismanninn, að taka heldur eftirlaun, en það er aðalatriði í hinu núgildandi ákvæði um þetta efni.
Háttv. þm. Stjk. (V. G.) var að tala um það, . að í dönsku blaði hefði verið mótmælt burtfelling ríkisráðsákvæðisins. Mig varðar ekkert um það, hvað staðið hefir í einhverju dönsku blaði. Alþingi verður að taka afstöðu til þessa máls án nokkurs tillits til þess, hvernig í það kann að hafa verið tekið í einhverjum dönskum blöðum.