22.08.1913
Neðri deild: 41. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 1651 í C-deild Alþingistíðinda. (1118)

38. mál, stjórnarskipunarlög

Framsögum. meiri hl. (Jón Magnússon):

Eg gleymdi áðan að geta þess, að meiri hlutinn getur ekki aðhylst br.till. við 3. málsgrein í 1. gr., að í stað landritari komi: »landritari eða skrifstofustjóri fyrstu skrifstofu«. Meiri hlutinn var á þeirri skoðun, að meðan ráðherra sé ekki nema einn, beri ekki að afnema landritaraembættið.