22.08.1913
Neðri deild: 41. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 1664 í C-deild Alþingistíðinda. (1123)

75. mál, landssjóður leggi Landsbankanum til 100 þúsund

Jón Ólafsson:

Herra forseti! Þótt þetta mál hafi gengið fram með töluverðum atkvæðafjölda við 2. umr., þá voru samt margir, sem að eins greiddu því atkvæði til 3. umr. í von um að frv. yrði endurbætt undir hana. Nú hefir nefndin því komið fram með breyt.till. á þgskj. 321, sem eg vona að háttv. þingm. hafi kynt sér.

Svo er mál með vexti, að margir eru óánægðir með að landssjóður taki fasta vöxtu af þessu fé. Tillagan fer því fram á, að landssjóður verði innskotseigandi (interreasent) að þessu fé. Með því vinst bæði að bankinn fær fast og stöðugt starfsfé og að landssjóður fær ágóða hlutfallslega við arð bankans. Þó að nú í ár og næstu ár verði prósent-talan ekki svo há, af því verið er að borga skuld, þá mun hún samt þegar Verða rúm 4% og síðan hærri, svo að landssjóður hefir ágóða, en ekki tjón, af þessu fyrirkomulagi.

Þá er talað er um að skifta arði bankans eftir eign, þá er vitaskuld að arður af seðlum bankans verði taldur bankanum, en ekki landesjóði, þó að þeir sé kallaðir landssjóðs-eign í orði kveðnu. Bankinn, en ekki landssjóður, ber allan kostnað við gerð þeirra. Af þessum ástæðum er farið fram á að orða greinina eins og hér er gert. Þegar landssjóður hefir greitt bankanum fyrstu 100 þús., þá á bankinn að greiða landssjóði tiltölulega Vexti af þeirri upphæð o. s. frv. Þetta er að mörgu leyti aðgengilegra fyrir landssjóð og líka aðgengilegt fyrir bankann, því að það hlýtur að auka tiltrú bankans og álit, að hann hefir svona mikið fé í veltunni og að landssjóður er meðeigandi (innskots-eigandi).

Við 2. umr. sætti þetta mál töluverðum andmælum frá hæstv. ráðherra og háttv. þm. S.- Þing. (P. J.). Eg hefi nú talað við þá báða og heyrt á þeim, að þeir teldu breytingarnar svo til bóta, að þeir myndu greiða atkvæði með frumv. við þessa umræðu, ef breytingartillögur okkar verða samþyktar. Eg vona því, að hver sá sem vill greiða fyrir þessu máli, muni greiða breyt.till. atkvæði.

Þá er loks farið fram á, að veitt sé heimild til að taka 200 þús. kr. lán í þessu skyni. Með þessu móti væri hægt að koma því svo fyrir, að þessi útgjöld yrðu landssjóði ekki til byrði að sinni. Ef til vill yrði þetta lán líklega tekið hér innanlands.

Þegar þingmenn nú íhuga alla málavöxtu, þá veit eg, að þeir sjá að þetta er ekki einungis bezti vegurinn, heldur líka lang-kaupmannlegast. Eg vona því að frumv. sæti nú góðum viðtök um og verði samþykt í einu hljóði út úr deildinni.