22.08.1913
Neðri deild: 41. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 1668 í C-deild Alþingistíðinda. (1126)

75. mál, landssjóður leggi Landsbankanum til 100 þúsund

Frams.m. (Benedikt Sveinsson):

Breytingartill. þær sem nefndin gerði við frumv., eru allar sjálfsagðar. Sumar eru leiðréttingar á prentvillum og sumar til þess að leiðrétta tölusetning greinanna. Mér sýnist nú að skrifstofan hefði átt að gera þetta, en úr því að hún hefir ekki gert það, þá varð nefndin að gera það.

Annars er frumv. nú svo limlest og umturnað, að því er engin lagfæringarvon í þessari deild. Við atkvæðagreiðsluna síðast vantaði marga þá menn, er helzt höfðu gert sér títt um frumvarpið og sætti það því hrakföllum í deildinni. Nú er að vísu kostur þessara manna við atkvæðagreiðslu, en nefndin hefir þó, úr því sem komið var, talið réttara að eiga ekki í höggi við deildarmenn, heldur senda frumvarpið aftur til efri deildar með þessum ummerkjum, því að henni er bezt treystandi til að lagfæra það, er ábótavant kann að vera. Þessi deild getur, hvort sem er, ekki boðið út þeim fræðimönnum, er sú deild hefir á að skipa um þessa hluti.