08.07.1913
Neðri deild: 6. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 135 í C-deild Alþingistíðinda. (113)

16. mál, stjórn landsbókasafns

Ráðherrann (H. H.); Ástæðan til þess, að laun landsskjavarðarins eru ekki tekin til athugunar er sú, að land skjalavörðurinn hefir ekki beðið um launahækkun, og stjórnin kunni ekki við það, að troða því upp á hann. Ef hann vill fá laun sín hækkuð, þá er hægur hjá fyrir hann að rita um það erindi til launalaganefndarinnar og eg efast ekki um það, að hún mundi veita honum áheyrn, og taka hana til greina eftir því sem hún áliti heppilegast Annars er starf landsbókavarðarins miklu meira en hans. Það er alveg óneitanlegt, að laun embættismannanna við Landsbókasafnið eru mjög lág í samanburði við það sem laun fyrir slík störf eru annarstaðar, einkum eru laun aðstoðarbókavarðanna óhæfileg, og það verður ekki hægt að halda Doktor Guðmundi Finnbogasyni áfram við safnið með þessum lágu launum, og er það illa farið um jafnfærann mann. Aðstoðarbókavarðasýslanirnar eru svo illa launaðar, að það borgar sig betur að vera dyravörður eða bókbindari við safnið.