23.08.1913
Neðri deild: 42. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 1688 í C-deild Alþingistíðinda. (1132)

1. mál, fjárlög 1914 og 1915

Benedikt Sveinsson:

Það var auðheyrt á háttv. framsögumanni fjárlaganefndarinnar, að hún er hörð í horn að taka gegn fjárbeiðnum á þessu þingi. Eg er því — eftir því sem á stendur háttv. framsögumanni þakklátur fyrir það, hvernig hann tók í brtill. mína á þgskj. 529, um 1000 kr. fjárveitingu hvort árið til þess að ryðja akfæran veg frá Kópaskersvogi inn að Jökulsárbrú í Öxarfirði. Lýsti háttv. framsögum yfir því, að þetta væri sanngjarnasta brtill., sem fram hefði komið við þennan lið fjárlagafrumvarpsins. Það sýnir því að hér er ekki farið fram á neinn óþarfa, þegar háttv. framsögumaður segir þetta og er umsögn hans því meir metandi, sem hann er maður gagnkunnugur á þessum slóðum, og veit því hvað hann er að fara með. Hann sagði líka, að nú væri meira lagt til vega en nokkru sinni hefði áður verið, og þó var hann þessari beiðni hlyntur. Þetta sýnir því alt saman, hve þessi vegur er nauðsynlegur og beiðnin sanngjörn. Er því óþarfi fyrir mig að mæla mikið með þessari breyt.-till. Þessi vegur verður flutningabraut eftir endilöngu héraðinu og kemur þrem hreppum að gagni. En hann er ekki talinn í vegalögunum, þótt aðstaðan sé alveg in sama sem annarstaðar, þar sem vegir eru kostaðir að miklu eða öllu leyti af landsfé, og mun það valda, að hann liggur um heldur fámennar sveitir. En þó hann sé ekki talinn í vegalögunum í tölu flutningabrauta, þá er þó rétturinn inn sami fyrir því. Vona eg því að þingmenn greiði ekki atkvæði á móti þessari tillögu, heldur taki henni vel.

Þá ber eg fram brtill. á þgskj. 548 ásamt þingm. Dal., og fer hún fram á að veittar verði 5000 kr. fyrra árið til þess að breikka veginn í Kömbum og steinlíma ræsi í veginum milli Reykjavíkur og Ölfusárbrúar. Nú vita menn, að veittar hafa verið 5000 kr. til þess að reyna bifreiðar á þessum vegi, en það er ósýnt að þær komi að notum, nema vegurinn í gömbum verði lgaður. Væri það ilt, ef sú fjárveiting yrði að engum notum, af því að vegurinn er nær ófær á einstöku stöðum. Nú er vegurinn í Kömbum svo krappur á þrem stöðum, að varla er hægt að fara hann á þessari bifreið, hvað þá á bifreið, sem hefði aftan í sér flutningsvagn.

Háttv. framsögum. fjárlaganefndar var þessari till. andvígur, af því að áætlun um, hvað viðgerðin á veginum mundi kosta, vantaði. Það er rétt, það hefir engin áætlun verið gerð um það. En tíminn hefir verið of knappur til þess. En eg hefi talað við menn, sem eru þessum vegi gagnkunnugir og hafa vit á vegagerðum og þeir telja, að ekki muni þurfa nema 3–4 þús. kr. til þessarar viðgerðar á veginum í gömbum. En auk þess þarf að lagfæra veginn austur að Ölfusárbrú á öðrum stöðum.

Trébrýrnar á veginum eru afleitar; þær standa hærra en vegurinn, plankarnir eru grautfúnir og margir brotnir, svo að hættulegt er að fara yfir þær, bæði fyrir sjálfrenninga og aðra vagna. Þessar brýr þarf því nauðsynlega að lagfæra. Nú er sennilegt, að nokkur afgangur yrði af þessum 5000 kr., þegar búið væri að gera við Kambaveginn, og mætti þá nota hann til þess að lagfæra þessar brýr eða aðrar skemdir á veginum austur. Auk þess sem brýrnar eru fánar og brotnar, þá eru þær líka mun mjórri en vegurinn. Tillaga mín er því bæði þarfleg og nauðsynleg.

Brtill. á eg á þgskj. 534, sem eg hefi borið fram með 2. þm. Rvk., er fer fram á að styrkurinn til Íþróttasambands Íslands verði hækkaður úr 500 kr. upp í 1000 kr. fyrra árið. Þessa brtill. höfum Við borið fram eftir tilmælum Íþróttasambandsins. Svo er mál vaxið, að Íþróttasambandið hefir mikinn hug á að styrkja Erling Pálsson til þess að fara utan og framast í sundi. Hann er mjög efnilegur sundmaður og því sennilegt, að hann geti komið að góðu gagni sem sundkennari. Faðir hans hefir það starf með höndum nú og gæti hann þá síðar tekið það starf að sér. Er því mjög nytsamlegt að hann læri sund til fulls. Er brýnt gagn að því að styðja svo góða íþrótt sem sundið. Þessi fjárbeiðni er líka í eitt skifti fyrir öll, að eins 500 kr. eitt ár. Og er þessi upphæð hverfandi, ef borin er saman við það sem lagt er til annarar kenslu, en eg verð þó að telja þessa íþrótt fult eins gagnlega sem margt það sem kent er í skólum, svo sem t.d. danska og biblíusögur og annar slíkur hégómi. Vona eg fastlega, að háttv. deild taki þessari tillögu vel.

Þá er brtill. á þgskj. 540, sem fer fram á að Gísla Jónssyni málara í Hafnarfirði verði veittur 1000 kr. styrkur fyrra árið. Gísli hefir stundað þessa íþrótt upp á eigin spýtur í mörg ár og hefir mikla hvöt til þessa. Er hann mjög efnilegur að sögn þeirra manna, sem bezt vit hafa á, og leggur mikinn hug á að framast í þessari list. Hefi eg talað um hann við Kjarval málara og segir hann, að Gísli hafi glögt og skarpt auga og fari furðu vel með samsetningu lita. Vona eg því, að þingið hlaupi undir bagga með þessum efnilega ástundunarsama listamanni.

Þá flytjum við 1. þm. Rangv. brtill. á þgskj. 527 um það, að fyrverandi alþingismanni Þorvaldi Björnssyni verði í viðurkenningarskyni veittar 1000 kr. fyrra árið. Skal eg vera fáorður um þessa brtill., því að 1. þm. Rangv . mun mæla betur með henni. Þorvaldur frá Eyri er svo þjóðkunnur maður, að engin ástæða er til þess að tala um, hve maklegur hann er þessarar viðurkenningar. Hann hefir allan sinn aldur verið höfðingi í sinni sveit og verið landinu til sóma fyrir gestrisni bæði við innlenda og útlenda. Hann hefir og verið hinn mesti frömuður dáða og framkvæmda í héraði sínu. En á seinni árum hefir hann orðið fyrir miklu óhappi. Hann reyndi fyrstur hérlendra manna botnvörpuútveg, var óheppinn um mannahald og mishepnaðist. Síðan hafa aðrir fetað í fótapor hans og gengið betur. En hann var sá sem braut ísinn fyrir botnvörpuútveginum, en hlaut ekki það happ af, sem seinni botnvörpuútgerðarmenn hafa haft. Þá er brtill. á þgskj. 554, um það að 16. gr. 29 orðist þannig:

Til núverandi eftirlitsmanns með því, að samningur um silfurbergsnám í Helgustaðafjalli sé haldinn . . . 1000 kr. hvort árið.

Þetta er að eins lagfæring á greininni. Þar var talin nauðsyn á að hafa eftirlit með silfurbergsnámunni og áætlaðar til þess 1000 kr. hvort árið. Hér í minni brtill, er að eins farið fram á að maðurinn, sem áður hefir haft eftirlitið á hendi, haldi því áfram. Þótti mér og fleirum tilhlýðilegt að taka þetta beint fram, þar sem núverandi eftirlitsmaður er góðu maklegur, því að hann var sá fyrsti, sem sýndi landssjóði, að hægt væri að hafa meiri arð af námunni en verið hafði meðan Tuliníus rak hana.

Svo hefi eg hér brtill. um lækkun á fjárveitingum, sem áætlaðar eru í fjárlögunum.

Önnur brtill. er á þgskj. 523, að í stað 20,000 komi 5000. Og til vara: Í stað 20,000 komi 10,000. Þetta er um fjárveitingu til viðgerðar á dómkirkjunni í Reykjavík. Mér kom það alveg óvart, að dómkirkjan væri komin á svo fallandi fót, að nú yrði að snara í hana svo miklu fé til þess að gera við hana. Fyrir tveim árum var gert við þakið á henni, og er undarlegt að menn gerðu ekki meira við hana þá um leið, hefði þess verið brýn þörf. Þegar hagur landssjóðs er svo bágborinn, sem nú er, finst mér fjarstæða að hann veiti svo mikið fé til þessarar alóþörfu viðgerðar. Finst mér, að bæjarsjóður sé ekki of góður til þess að leggja til þetta fé, ef bráð þörf skyldi kalla. Þó sé eg ekki tiltækilegt að leggja það til, að landssjóðsstyrkur til þessa verði niður feldur, en mér sýnist hann fullsómasamlegur (og reyndar alt of hár), þótt hann sé ekki nema 5000 krónur. Má gera talsvert við svo einfalt hús með svo miklu fé.

Enn er brtill. á þgskj. 526, og hefi eg borið hana fram með 1. þm. S.- Múl. Hún fer fram á að styrkurinn til Ingólfshöfðavitans falli burtu. Það ber til þessarar brtill., að við höfum átt tal við ýmsa skipstjóra, flesta íslenzku skipstjórana, og þeir telja alls enga nauðsyn á því að setja þennan vita á Ingólfshöfða. En aftur hafa þeir talið bráðnauðsynlegt að bygður yrði viti á Meðallandstöngum. Þar þyrfti vita, hvort sem viti væri á Ingólfshöfða eða ekki, og viti á Meðallandstanga er því ekki sparaður þótt þessi viti verði settur. Sögðu þeir, að íslenzk skip hefðu ekkert gagn af víta á Ingólfshöfða, en miklu fremur, ef viti væri á Meðallandströndum. Þetta hafa bæði íslenzkir og danskir skipstjórar sagt. Þeir sem helzt mundu hafa gagn af vita á Ingólfshöfða, eru þýzkir botnvörpungar, því að þeir veiða þar í landhelgi. Íslenzkir botnvörpungar hafa engin not af vita þessum, því að þeir eru ekki á veiðum í landhelgi og hafast lítt við á þeim slóðum. Skip, sem koma til landsins frá útlöndum, hafa nauðalítið gagn af honum, því að þau taka land annarataðar. Þau skip, sem ætla til Austfjarða, koma að landi við Hornið eystra, en þau skip, sem ætla vestur um, koma að landi við Hjörleifshöfða eða Dyrhólma. Nú er kominn viti á Hjörleifshöfða, og nægir hann þeim, sem þar koma til landsins.

Eins finst mér óþarfi í þessu máli að vera að vitna í leiðarljósið á Botniu, sem nefnt hefir verið sem nokkurs konar »autoritet«. Þá álit eg betra að tala við íslenzka skipstjóra og spyrja álits þeirra. Hitt sannar alls ekkert, þó að hægt sé að fá tvo eða þrjá danska skipstjóra til þess að mæla með þessu eða öðru, þegar 20 íslenzkir skipstjórar mæla á móti því.

Þó háttv. flutningsm. finnist það ótilhlýðilegt, að þessi fjárveiting til Ingólfshöfðavitans sé aftekin sakir þess að allmikið vitagjald er lagt á skip, þá verður þó að gæta þess, að nú eru komnir margir vitar, sem landið kostar, en í annan stað sjálfsagt, að vitarnir séu þar, sem þeir verða skipunum að sem mestum notum. Og þegar engin brýn þörf er á þessum vita, veit eg ekki, til hvers menn eru að veita stórfé til þess að byggja hann.