23.08.1913
Neðri deild: 42. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 1708 í C-deild Alþingistíðinda. (1134)
1. mál, fjárlög 1914 og 1915
Bjarni Jónsson:
Framsögumaður (P.J.) vildi halda því fram, að mótsögn væri milli tillagna minna, þeirri um kjötsala samvinnufélaganna og hinni um viðskiftaráðunautinn. En þetta er eigi annað en hugarburður hans. Því að starf það sem eg hefi haft á hendi in síðustu ár, er alt annars eðlis en starf kjötsalans og var til þess stofnað með alls ólíkum hætti. Vona eg að menn sannfærist um það áður en eg lýk máli mínu.
Mun eg nú gera grein fyrir tildrögum til þess, er þessi sýslan var stofnuð, hvernig menn höfðu hugsað sér hana, hverjar undirtektir hún fekk af Íslendingum og Dönum og hverjar afleiðingar þær undirtektir höfðu.
Munu menn fyrirgefa, þótt eg verði margorður hér um, því að mér er einum manna þörf á að halda líkræðu yfir sjálfum mér og auk þess yfir því starfi, sem eg hefi haft á hendi nm nokkur ár. Eg veit með vissu að mér muni ekki ætlað starfið, þótt því yrði haldið áfram; og eg þykist vita, að nú muni menn eigi vilja láta verða framhald á því. Þótt eg beri nú málið fram, þá býst eg eigi við neinum sigri, en firra vil eg sjálfan mig viti og þá sem mér vilja fylgja. Því að eg tel algerlega rangt að leggja þetta starf niður. En eg verð að mótmæla rangindunum. Vil eg eigi vera galdrakarl með múlband, sem þetta er eftir haft:
Eg kenni mönnum hugarhik
og helzt að sinna öngu.
Því kann margur in þöglu svik
að þegja við öllu röngu.
Þessi þöglu svik vil eg ekki kunna. Tildrögin til þess, að viðskiftaráðunautsatarfið var hafið, voru þau er nú skal greina. Víðsvegar um land undu menn því illa, að eigi var neinn maður til þess að gæta hagsmuna landsins í viðskiftum þess við aðrar þjóðir. Varð því nokkurt umtal um það mál. Og eftir kosningar 1908 höfðu nýkosnir meiri hluta menn fund, þeir er bjuggu í Reykjavík og þar í grend, til þess að ræða með sér ýmis mál til undirbúnings undir þingið 1909. Þar á meðal var þetta mál. Þann 5. Janúar 1909 réðu þeir með sér að vinna að því, að Alþingi veiti fé til þess að hafa erlendis trúnaðarmenn og ráðunauta um hag landsins á þeim stöðum, sem þurfa þykir. Eg hefi orðrétt yfir ályktun þess fundar. Voru að þessu máli þeir Benedikt Sveinsson, Bjarni Jónsson frá Vogi, Björn Jónsson, Björn Kristjánsson, Hannes Þorsteinsson, Jens Pálsson, Jón Þorkelsson, Kristján Jónsson, Sigurður Sigurðsson og Skúli Thoroddsen. Þegar Björn Jónsson var orðinn ráðherra vakti hann máls á þessu á flokkafundi 14. Apríl, og 16. Apríl var samþykt með samhljóða atkvæðum að fylgja því fram, að veittar yrðu 10.000 krónur á auka- fjárlögum til tveggja ráðunauta, 5000 handa hvorum síðara helming ársins. Var þá og ætlast til að veittar yrðu 20.000 kr. hvort árið á fjárlögunum. Skyldu mennirnir vera tveir og hafa 10.000 kr. hvor í laun og kostnað Til styrktar máli mínu vil eg geta þess, að þetta kom ljóslega fram í umræðum um málið í efri deild. Skal eg með leyfi forseta lesa nokkur orð úr ræðu Steingríms Jónasonar, sem þá var konungkjörinn :
»Hins vegar finst mér fjárupphæðin, sem til þess var ætluð, alls ekki of há, og finst mér jafnvel furðu lágt, að áætla ekki nema 5000 kr. laun (fyrir hálft ár) til slíkra manna; en úr því ráðherra hefir álitið þá upp. hæð nægja, þá er ekkert þar til að segja. Annara finst mér of mikið í ráðist nú, að fara að atofna tvö slík embætti, og samsvarar það ekki þeim sparnaðarhugmyndum, sem menn nú bera á vörum sér«.
Þessi orð hans urðu til þess, að einn maður úr meiri hlutanum setti sínum flokki tvo kosti, að annað hvort yrði veitingin feld eða þá að veitt yrði til eins viðskiftaráðunauts. Þetta gat hann gert af því að meiri hlutinn hafði eigi nema eins atkvæðis yfirburði í efri deild. Með þessum hætti varð fyrirtækið aldrei nema hálft. Voru þá veittar 12.000 kr. til viðskiftaráðunauta í fjárlögunum. Þó var enn sem fyr ætlast til að sá eini reglulegi viðskiftaráðunautur hefði 10.000 krónur í laun og kostnað svo sem og varð, en 2000 voru ætluð til sérstakra sendiferða, svo sem og kom fram. Þessi voru þá tildrögin og þetta var samþykt á þinginu 1909. Síðan var viðskiftaráðunautur skipaður svo sem menn muna, því að hollvina tungum hefir orðið tíðrætt um þennan mann síðan.
Undirtektir Íslendinga voru mestmegnis illmæli um manninn, og þótt ótrúlegt megi virðist, árásir á starfið sjálft. Unnu menn það til að spilla málstað landsins til þess að vinna mótstöðumanni sínum mein. Þeir menn þögðu mestmegnis, sem létu sér manninn lynda, en hinir höfðu hátt og létu móðan mása. Maður þessi var borinn tvenns konar brigzlum af sínum eigin landamönnum. Inn fyrri hluti illmælisins var fólginn í því, er nú skal greina.
Fyrst var þá haldið fram, að starf þetta væri stofnað eingöngu í þágu verzlunarinnar og kölluðu óvinveitt blöð manninn verzlunarráðunaut. Var þetta gert af ásettu ráði, af því að þau hugðust með því fá betri höggstað á manninum. Þóttust geta með von um góðan árangur álasað honum fyrir, að hann hefði ónóga þekking á verzlun og væri því illa fallinn til starfans. Má vel vera að hann hafi eigi haft næga þekking á þeim hlutum, því að það verður um fáa sagt. En þeim hefir fram til þessa láðst að geta þess, hverja spekinga þeir mundu hafa til kosið. En með þessu var og gerð árás á starfið sjálft, og unnu þeir það til að ná í manninn. Hvað gerði það í þeirra augum, þótt þeir rýrðu nýja stofnun í augum þjóðarinnar og gerðu hana tortryggilega? Tilgangurinn helgar aðferðina hugsa þeir, og hann var að svala sér á mótstöðu manni. En langt var frá því, frá upphafi, að staða þessi ætti að vera svo sem þeir létu í veðri vaka. Hún átti að koma í stað þess, er aðrar þjóðir hafa ræðismenn og sendiherra. Nú vita menn, að Danir sitja þar yfir kosti vorum, með engum rétti þó, og getum vér því eigi verið frjálsir í því efni. Viðskiftaráðunauturinn var því vant við kominn. Hann mátti ekki fara inn á það svið, sem Danir telja sér, svo að eigi risi þar af deilur í ótíma, en á hina hliðina var heimtað að hann gerði sem mest. Gæti eg vel hugsað mér að óvinum hana hefði eigi tekist öllu fimlegar, þótt þeir hefði sjálfir hlotið happið.
Engum af hvatamönnum þessa mála hafði komið annað til hugar, en að þetta væri vísir og upphaf þess, að vér Íslendingar hefðin ræðismenn út um lönd í líking við aðrar þjóðir, svo sem réttur vor er til. En þeir menn fóru með rangt mál, sem héldu því fram, að starf þetta væri eingöngu í þágu verzlunarviðskifta. Og þeir fóru vísa vitandi með rangt mál, því að á þinginu 1909 kom það ljóst fram, að svo var ekki, og sést á því, að mjög var seilst um hurð til lokunnar, er vöruþekking var talin helzta skilyrði þess að geta gegnt starfinu. En mun nú færa fullar sönnur á það, sem nú hefi eg sagt. Hér var í þessari sömu deild gerð fyrirspurn til ráðherra 1909 — eg ætla það væri núverandi 1. þm S.-Múl. — um það, hversu þessu starfi skyldi háttað. Svar Björns Jónssonar, sem þá var ráðherra, leyfi eg mér að lesa. Það hljóðar svo:
Eg vil lýsa aftur yfir því, út af fyrirspurn háttv. 2. þm. S.-MúI. (J. Ól.), að eg ætlast til þess, að enginn sé til þessa starfa valinn (viðskiftaráðunauts) sem reki nokkra verzlun eða aðra atvinnu fyrir sjálfan sig eða aðra. Hann má ekki vera nokkurs manns umboðsmaður annars en stjórnarinnar. Hann á að vera öllum óháður og eingöngu starfsmaður landsins. Viðskiftaerindrekarnir mega alls ekki hafa umboðsmensku-starfa á hendi, því að eg tel það verzlun eða atvinnu fyrir sjálfa þá. Það er því afar-áríðandi að þeir séu sem allra óháðastir.
Þetta tekur af öll tvímæli og sýnir, að aldrei var til þess ætlast, að þessi maður seldi eða keypti vörur. Enda er það vitfirring að ætla einum manni að kaupa og selja vörur fyrir alla kaupmenn á landinu. Þetta er nú ein hliðin á andróðrinum, og var stefnt á manninn, sem starfið var veitt. Stafaði þetta af því, að höfundar árásanna gátu ekki fyrirgefið honum afstöðu hans í svo nefndu sambandsmáli. En þeir létu eigi hér staðar numið, heldur reyndu að spilla fyrir honum og starfsemi hans með því, að ljósta upp þeim kvitti, að hann væri undirróðrarmaður gegn dönskum stjórnarvöldum í Íslands málum. Erindisbréfið sýnir þó, að langt var frá því, að fyrir hann væri lagður nokkur undirróður gegn Dönum, enda hefir hann aldrei gert neitt í þá átt.
Þessar voru undirtektir Íslendinga. Undirtektir Dana voru svipaðar, að breyttu því sem breyta þarf sakir afstöðu þeirra til málsins. Héldu þeir því einkum á loft, að Íslendingar segðu sjálfir, að maðurinn væri undirróðrarmaður gegn Dönum. Þeir tóku því og fegins hendi að hann væri heimskur og til einskis nýtur, en þó gerðu þeir rammar árásir á hann svo sem kunnugt er. Var ráðist á hann á ríkisþingi Dana og í blöðum þeirra og jafnvel stjórn þeirra og sendiherrar báru sakir á hann í bréfum til stjórnarinnar íslenzku. Hefi eg gefið nákvæma skýrslu um þá viðureign alla í bæklingi mínum, sem eg kallaði »Skilur haf hjarta og vör«.
Þá er að líta á, hverjar urðu afleiðingar af þeim undirtektum, sem nú var lýst. Af þeim hlauzt það, að maðurinn átti erfitt uppdráttar utan landa og innan. Þeir menn urðu tregir til að eiga mök við hann eða hlýða á mál hana, sem voru Dönum vinveittir eða varfærnir menn, þótt það kæmi eigi til, því að þeir héldu að þeir ættu við undirróðrarmann gegn Dönum. Þessi tortrygni átti rót sína að rekja til óhlutvendni þeirra manna hér á landi, sem vildu alt til vinna að hnekkja manninum. Hún gerði viðskiftaráðunautinum alt erfiðara til framkvæmda, en ella mundi orðið hafa, og verða menn því að halda honum til góða, þótt minna yrði úr, en heimtufrekir og fáfróðir menn kröfðust. Hér sannaðist til fulls ið fornkveðna, að án er ilt gengi nema heiman hafi.
Afleiðingarnar urðu þó að einu leyti góðar. Því að alt fimbulfambið um þennan voðamann, sem sendur væri til höfuðs Dönum, vakti víða eftirtekt á landinu og högum þess. Varð að því leyti óbeinn hagur að þeim.
Ein tilraunin til þess, að gera mig óvinsælan, þá er eg var orðinn viðskiftaráðunautur, var sú, að ljúga til um laun mín. Var því haldið fram í blöðum og á flestöllum mannfundum, að eg hefði 12 þúsundir króna að launum. En þetta var með öllu ósatt og sagt móti betri vitund. Nú vita allir, að eg hafði 10 þúsundir kr. í kaup og allan kostnað, en síðan 1911 eigi nema 6000 kr. Það hefir reynst örðugt að koma mönnum í skilning um, að ferðir utanlands kosti nokkuð. Þykist eg skilja, að alþýðu manna sé það ekki ljóst, en þeir menn, sem hafa gert Alþingi reikning fyrir ferðakostnaði hér innanlands, þeir ættu þó að skilja, að eitthvað muni það líka kosta að ferðast erlendis. Eitt dæmi get eg nefnt þess, hversu vel gekk að telja mönnum trú um það, að laun mín væru svo há sem skrökvað var. Það er, að eg var nýlega settur í skatt fyrir 10,000 krónum. Árstekjur mínar fyrstu árin hefði með sanngirni mátt meta 5000 kr., en síðan 1911 ekki fult svo mikið, því að auk þess, sem eg hefi gert reikning fyrir, hefi eg orðið að eyða 200 kr. á mánuði úr mínum vasa, þegar eg hefi verið á ferðalagi, því að ferðalög hafa í för með sér margan tilkostnað, sem landinu verður eigi beinlínis gerður reikningur fyrir. Hafði eg og frá upphafi einsett mér, að hafa reikninga mína svo lága, að enginn gæti véfengt þá. Enda hafa engir til þess orðið nema einn maður, sem eg sé ekki ástæðu til að láta mér sárna við.
Eftirtölur um laun mín hafa verið vísavitandi tilraun til að gera mig óvinsælan og til fjandskapar við mig. Hefir tilætlunin verið sú, að telja mönnum trú, um, að starf þetta eða sýslan hafi frá upphafi verið til þess sett á stofn, að lausa í mig fé landsins. Svo ramt hefir og kveðið að öfund manna yfir þessu, að mér þykir ástæða til að sýna mönnum, hvernig reikningar mínir við þetta land standa.
Eg var fjögur ár í skóla og fékk fyrsta árið 150 króna styrk, en 200 kr. á ári síðan, með vöxtum og vaxtavöxtum á vaxtafæti 0,04 var styrkur orðinn um 810 kr. árið sem eg útskrifaðist. Síðan eru nú 25 ár. Hefði nú þessi upphæð verið ávöxtuð þann tíma með sama hætti. væri hún nú orðin um 2159 krónur. Þetta hefi eg þegið af landins. Síðar var eg í þjónustu landsins um 10 ára akeið, og hafði að meðaltali 1000 krónur um árið fyrir vinnu, sem engum var annars minna goldið fyrir en 2000 kr. Tel eg mér þar vangoldnar 1000 krónur á ári. Ef það fé hefði verið ávaxtað með sama hætti sem fyr var reiknað, þá væri það nú um 11,250 krónur. Ætti eg þá eftir þessu að eiga 9091 kr. hjá landinu.
Auðvitað er þetta ekki annað en sanngirniskrafa, en hún er og verulega sanngjörn. Menn sjá á þessu, að æðimikil brjóstheilindi þarf til að bregða mér um, að landið hafi alið mig um skör fram. Má nú og öfundin hvíla sig, því að eg hefi eigi heyrt þess getið, að mér muni atvinna ætluð eftir nýárið. Mundi eg og ánægður, ef landið vildi gjalda mér það verkakaup, sem eg á hjá því. — Þess vil eg geta, að eg eyði engum orðum til að svara þeim mönnum, sem hafa verið svo ósvífnir að kalla laun mín í þessi 4 ár bitling. Mætti með sama rétti kalla þeirra laun bitling.
Eitt af því, sem gert hefir mér stöðu mína erfiða, er það, að stjórnin hefir sjaldan eða nálega aldrei lagt neitt ákveðið starf fyrir mig. Meðan Björn heitinn Jónsson var ráðherra, skrifaði eg honum um þetta í einkabréfum, en hann svaraði mér, að eg ætti að skapa stöðuna sjálfur. Annað atriði varð og ins sama valdandi, en það var rógurinn. Hann gerði það að verkum, að menn leituðu síður til min. En þeir sem gerðu það, þá veit eg ekki betur en þeir hafi fengið úrlausn mála sinna. En þótt mér yrði erfitt að skápa stöðuna, þá vil eg þó láta þess getið, að eg hefi skapað hana að einu leyti og skapað hana þar ljóslega. Eg hefi markað hana ljóst að því leyti, að eg hefi engin mök átt við danska ræðismenn eða sendiherra yfir höfuð. Eg taldi sýslan þessa upphaf að því, að Íslendingar vildu taka sín mál í eigin hendur og vildu því með engu móti að sendimanni sínum yrði blandað með nokkrum hætti saman við sendimenn Dana. Eg hefi að þessu leyti skapað stöðuna, að eg hefi hvorki hneigt mig né beygt fyrir neinum, og vænti eg, að eftirmenn mínir geri ið sama, svo að það sjáist, að Íslendingar eigi menn, sem þora að standa eða falla fyrir eiginn reikning.
Um árangurinn af starfi mínu, skal eg ekki tala um í dag, en læt mér nægja að vísa til bæklings mins um »Viðskifti Íslendinga við aðrar þjóðir« bls. 16–17. Þar er meðal annars sýnt fram á, að goldinn var kostnaður við sendiför mína, með því að ein vörutegund lækkaði í verði fyrir mína tilstilli.
Þetta meðal annars sýnir,að það margborgar sig að hafa sendimenn úti um viðskiftaheiminn, enda ættu allir þingmenn að vita það. Það mundi margborga sig, þótt miklu meira væri til kostað, en gert hefir verið. Er það allundarlegt, hversu mörgum mönnum dylst þetta. Menn virðast ekki muna eftir því, að verzlunarmagnið er orð um 30, 000,000 króna á ári. Ef þeir myndi það, þá mundu þeir og skjótt sjá, að ekki þarf miklu að muna til bóta, til þess að vel borgi sig að gjalda fyrir umbótina þetta fé, sem eg legg til að veitt verði og þótt helmingi meira væri. Það er í sannleika sagt einkennilegt að bera saman, hvað þingmenn vilja veita til ýmissa hluta annara og hvað þeir vilja gera til umbóta á viðskiftum í verzlun og öðru. Það er í alvöru talað vítavert af stjórninni og eigi síður fjárlaganefndinni, að vilja láta þessa sýslan falla niður. Manni verður að spyrja: Til hvers hefir hún verið sett á stofn, ef nú á að leggja hana niður. Líklega til þess að sýna einu sinni enn þá, að grundvallarregla Íslendinga sé ætíð að hrökkva en aldrei að stökkva. Er það nú orðið að vana og sýnir að þessi kynslóð man nú eigi til þess manns, sem hafði að einkunnarorðum: Aldrei að víkja: Væri henni þó vandalauat að fara að dæmi þessa manns, sem landið hefir átt einna beztan.
Þar er nú að líta að lokum, hvað þingið vinnur annað, ef það lætur ná svo gott mál niður falla. Það er engu minna um vert en ið fyrsta, að vér fáum óvirðing annara þjóða. Þá er þær sjá að horfið er frá svo sjálfsögðu máli sem þessu, þá vita þær, hvað veldur: að Íslendingar þora ekki annað en leggja niður rófuna. Vér verðum oss til skammar, þá er aðrar þjóðir sjá, að eigi þarf annað en yglast á oss, er vér göngum eftir sjálfsögðum rétti vorum, sem haldið er fyrir oss með röngu; er þær sjá, að vér hyggjumst deyja munu fyrir sjóninni einni saman, þótt þau augu sé eigi jafnöndótt sem Þórs, sem vér eigum í móti að horfa.
Þingið verður með slíku framferði tálmi fyrir framgangi góðs máls, þröskuldur á vegi þess að fram gangi réttmæt krafa vor um aukið sjálfstæði. Hér var byrjun þess, að vér fengim eigna ræðismenn og eigna sendimenn til annara þjóða. En er menn nú heykjast á svo lítilli byrjun, þá slær óhug á alla Íslendinga og þeir hugsa, að árangurslaust sé að fara fram á nokkuð það sem til bóta horfir. Og Dönum er þar með bent til kvæða, að þeirra málstað sé borgið, ef þeir hríni hátt í blöðunum og á þingum, því að Íslendingar láti þá óðara af sínu máli.
Þetta er sama hugarstefnan, sem mundi lýsa sér í því, ef felt yrði að veita styrk til útgáfu bókar þeirrar sem eg nefndi í fyrri hluta ræðu minnar. Þá gleymdist mér að svara einni mótbáru og nota því tækifærið nú. Framsögumaður fjárlaganefndar taldi það viðurhlutamikíð að veita styrkinn til þeirrar bókar, því að menn þektu hana ekki og hefðu eigi vit á henni. En mér er spurn, þektu menn og höfðu vit á orðabók þeirri, sem fé var veitt til fyrir skemstu ? Þeir sem kunna að dæma um orðabækur, ættu að hafa nasasjón af því, hvort vel er ritað um sögu landsins eður eigi. Eg veit, að menn muni svara mér, að um orðabókina hafi þeir farið eftir vottorðum sérfræðinga, einkum Bjarnar Magnússonar (Ólsens). En nú stendur svo vel á um þessa bók, að Björn Magnússon Ólsen hefir sama sem gefið gefið henni vottorð, því að hann hefir veitt henni verðlaun úr sjóði Jóns Sigurðssonar. Er nú Björn vitur þegar hann dæmir um orðabók Jóns Ólafssonar, en óvitur þegar hann dæmir um bók Einars Arnórssonar? Eða haltra ef til vill röksemdir nefndarinnar?
En hvorttveggja á sammerkt að því leyti, að stefnan er »ætið að víkja«, að haga sér svo sem vér vér Værim eign Dana, eins og þeir ætti oss með húð og hári svo sem til dæmis bóndinn á sauðina. Þessi stefna er þess eðlis, að hver sem henni fylgir og veit um skaðsemi hennar, eða fylgir henni viljandi og viss vitandi, — hann er landráðamaður. Þeir menn eiga engrar vægðar von og enga von fyrirgefningar. »Faðir fyrirgef þeim, þeir vita ekki hvað þeir gera« stendur í heilagri ritningu. Það er in eina fyrirgefningarvon þessara manna, ef þau orð eiga við þá.
Eg hefi nú leitt full rök að því, að þessi sýslan megi ekki niður falla. Tillaga mín nú er samhljóða þeirri, sem eg bar fram 1911. En vilji þingið heldur hafa það með öðru aniði, þá það. En eg legg til, að viðskifaráðunauturinn hafi hér skrifstofu og viðakiftafulltrúa í 8 helztu viðskiftalöndum vorum, er að líkindum mætti fá fyrir 1000 krónur í skrifstofufé handa hverjum. Þar væri þá heilt kerfi, er starfað gæti að því allan ársins hring, að veita erlendum mönnum skýrslur um Ísland og Íslendingum um önnur lönd. Sjálfur væri viðskiftaráðunauturinn skrifstofustjóri, þá er hann væri heima, en mundi auk þess ferðast nokkra mánuði á ári þang að sem helzt væri þörf.
Nú þykist eg vita, að mér muni eigi framvegis vera ætluð þessi staða, þótt fram gangi tillagan. En eg get bent stjórninni á mann, sem er ágætlega til starfsins fallinn, og mun eg á sínum tíma segja ráðherra það í trúnaði, hver hann er. Sá maður er áhugamaður inn mesti um alt, sem hann tekur sér fyrir hendur, einkum hefir hann mikinn áhuga á því, að fram gangi réttar, kröfur vorar til sjálfstæðis. Auk þessa er hann ríkur maður og mundi því betur sætta sig við smáskamtastefnuna en bláfátækir menn svo sem eg og mínir líkar.
Í ræðulok vil eg geta þess, að engum þarf nú að koma til hugar að þetta sé matarmál fyrir mig eða sprottið af því að eg sé svo mikill »eiginhagsmuna maður«, sem einn rithöfundur hefir sagt, sá er eg ekki mun minnast á nú, en finna í fjöru síðar. Þetta þarf engum nú að koma til hugar, af því að allir vita eins vel og eg, að mér mundi bægt frá þessari stöðu, þótt henni yrði haldið áfram. Þessi brigzl, sem fyr nefndi eg, munu af því sprottin að eg greiddi atkvæði með fjárveiting til viðskiftaráðunauts, þótt hún væri bundin við mitt nafn 1911. En sú tillaga, sem þá kom til atkvæða, var svo orðuð, að eg átti um tvent að velja: annaðhvort að láta áhugamál mitt og flokks mína falla, eða láta það eigi gjalda nafns míns. Flestir þeir menn, sem báru míg þeim brigzlum, vissu vel, að þeir fóru með rangt mál, og flestir gerðu það móti betri vitund til fjandskapar við mig. Þó mun eg eigi gjalda þeim heiftir fyrir, af því að skapferli mínu er svo háttað, að eg get eigi alið með mér reiðina, þótt menn beiti mig rógi og brigzlum. En fyrirlitning mína skulu þeir hafa frá insta hjartans grunni.