26.08.1913
Neðri deild: 42. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 1773 í C-deild Alþingistíðinda. (1151)
1. mál, fjárlög 1914 og 1915
Jón Ólafsson:
Herra forseti! Það eru eru ein 5–6 atriði, sem eg vil minnast á. Fyrst er það brt. á þgskj. 502 um að hækka styrkinn til mótorbáts á Hvítá í Borgarfirði. Eg er viss um, að ef nefndin hefði vitað um gagn það, sem þessi bátur gerir, þá mundi henni ekki hafa vaxið í augum að leggja fram þessar 800 kr., sem farið er fram á að veittar verði. Eg hefi líka heyrt, að ef þessi styrkur fáist ekki, þá verði að hætta ferðunum. Slíkt finst mér ótækt.
Þá vildi eg minnast á tillöguna á þgskj. 526, sem er um Ingólfshöfðavitann, að leggja styrkinn til hans niður. Við tillögumenn neitum því ekki, að vitinn sé til gagns, en við lítum á, hve mikið til gagns og hverjum til gagns.
Það hefir verið sagt, að skip sem komi hingað til landa og ekki fari fastar millílandaferðir, taki land við Ingólfshöfða. Þetta segja sjómenn að sé vitleysa. Ef skipið ætlar til austurlandsins þá tekur það land ekki sunnar en við Eystra-Horn; en ætli það til Suðurlands eða Vesturlands, þá tekur það land við Dyrhólaey. Einu skipin, sem land taka við Ingólfshöfða, eru útlendir botnvörpungar, sem eru þar vanalega að veiðum í landhelgi. Það gæti nú verið, að einhver héldi því fram, að það væri mannúðarskylda af okkur Íslendingum að byggja þennan vita. Þeim vil eg svara því, að við eigum fyrst að byggja vita þar sem löndum okkar eða viðskiftamönnum er hættast við að stranda, og síðan hugsa um útlenda fiskiþjófa. Við Ingólfshöfða er íslenzkum skipum ekki hætt við að stranda, af því að Íslendingar eru þar aldrei að veiðum, af því að þar eru engin fiskimið nema í landhelgi. Það hefir verið sagt, að vitinn á Meðallandstanga sé of dýr til að byggja hann nú. Þetta kann að vera rétt. Þess vegna er heldur ekki farið fram á að hann verði bygður nú. Spurningin verður þá þessi: Eigum við að byggja ódýru og gagnminstu vitana nú. Eða eigum við að bíða þangað til við getum bygt þá dýrari, sem jafnframt er mest nauðsynin á? Eg held að ekki geti orðið um það skiftar skoðanir, að við eigum að bíða. Meðallandstangavitinn er dýrari, en líka margfalt gagnameiri. Og hann er landsmönnum vorum til gagns; en hinn varla eða ekki. Við eigum því að bíða þangað til við getum bygt Meðallandsvitann.
Brt á þgskj. 528 er að eins orðabreyting; orðunum »yfir Fagradal« skotið inn í. Í sambandi við þetta skal eg geta þess, að fjárlaganefndin hefir lagt til, að fjárveitingin yrði ekki bundin við nafn Þórarins Tuliniusar. Þegar við æsktum eftir þessari fjárveitingu, vissum við ekki að nokkur annar maður mundi vilja takast þetta á hendur. Ef svo er að einhver annar vilji takast þetta á hendur fyrir sama styrk, þá er það gott. Eg sé þá ekkert á móti því, að þeim manni yrði falið að fara ferðirnar. Eg efast ekki um að landsstjórnin muni veita þeim manni styrkinn, sem Múlasýslurnar óska. Eg get því ekki séð neitt á móti því, að brt. nefndarinnar verði samþykt.
Brt. á þskj. 549 um að inn í 15. gr. komi nýr liður, sem veiti fé til að ljósmynda skjöl í »Ríkisskjalasafninu« danska, er mjög þörf. Eg tel fulla nauðsyn á að veitt fáist fé til þessa, því að mörg skjölin snerta sögu þessa lands og er þeirra þörf hingað á safnið. Eg vona að þessari tillögu verði vel tekið.
Þá ætla eg lítillega að minnast á kirkjugerðina. Í því máli fylgi eg þeim, sem alveg vilja fella burtu liðinn. Að minsta kosti vil eg ekki veita meira en svo, að víst geti verið að kirkjan ekki falli. Söfnuðinum hefir oftsinnis verið boðið að taka að sér kirkjuna. Hann hefir ætíð neitað því þverlega. Mér finst nú, að þingið ætti að skamta svo úr hnefa framlög sín til kirkjunnar, að söfnuðurinn fengi að finna til talaverðra óþæginda. Hér í deildinni var einu sinni sá forseti, sem svelti menn til að þegja. Hann veitti oft ekkert fundarhlé, þótt talað hefði verið 3–4 stundir, fyrri en þingmenn höfðu þagnað. Sömu aðferð vil eg láta hafa í þessu. Eg vil ekki láta gera neitt við kirkjuna, svo að söfnurinn verði að taka hana að sér, ef hann vill hafa viðunandi húsaskjól. Ef söfnuðurinn færi fram á að fá talsvert háa fúlgu sem meðlag með kirkjunni eitt skifti fyrir öll, þá skyldi eg vera með því. En með þessu get eg ekki verið.
Það er nú búið að segja margt og mikið um styrkinn til »Eimskipafélagsins«. Eg vil að eins taka það fram, að eg er fylgjandi því, að veita félaginu 40 þús. kr. seinna árið. Þetta er sama upphæð sem »Sameinað« félag hefir úr ríkissjóði. Við megum ekki búa okkar unga félag ver úr garði heldur en danska félagið er gert. Það á að keppa við danska félagið og við megum búsat við, að Sam. fél. beiti alls konar þrælatökum, t. d. að það lækki flutn.gjald mikið eða ef til vill taki að sér að flytja fyrir ekkert. Hinu get eg ekki verið með, að þvinga félagið til að taka að sér strandferðirnar, þótt því séu boðnar til þess 400 þús. kr. Eg lít svo á, að langheppilegast væri að félagið myndaðist af hluttöku einstakra manna.
Um að hækka vextina af lánum til landssjóðs, er eg alveg samdóma háttv. 1. þm. Skagf. (Ól. Br.). Eg lít svo á, að nóg sé gefið samt í þessum lánum, þótt vextirnir yrðu 5%. Þótt reiknaðir Væru 6%; þá er það samt fyrir neðan núverandi vaxtahæð. Vextirnir eru nú 61/2%.
Þá er loks ein brtill. frá nefndinni á þgskj. 557, sem eg vil leggjast á móti af alefli. Hún leggur til, að breyta orðinu »sjálfrenningur« í »bifreið«. Sjálfrenningur er nákvæm og góð þýðing á »automobil«. Það táknar að vagninn hreyfist af sjálfum sér; þ. e. a. s. að hreyfiaflið sé í vagninum sjálfum. En »bifreið«. Hvað táknar nú bifreið? Það táknar vagn(reið) sem bifast. Er nokkur vagn til, sem ekki bifast ? Ekki vildi eg eiga að aka í honum, ef til væri. »Bifreið« getur líka táknað vagn, sem titrar. Þekkir nokkur vagn, sem ekki titrar? (Einar Jónsson: Eg þekki það). Þingmaðurinn verður eflaust frægur fyrir þá uppgötvun. Enginn annar maður í heiminum þekkir vagna, sem renna án alls titrings. »Bifreið« er heldur ekki orðið fast í málinu. Það hefir lítið á prenti sést og aldrei heyrst í tali fyrri en nú í vor. Og þó svo væri, þá sýnir reynslan, að mjög auðvelt er að útrýma röngum orðmyndum. Fyrir nokkrum árum sást ekki í nokkru blaði né heyrðist sagt annað en »botnverpingur«. Svo var bent á að það væri röng mynd og botnvörpungur væri rétta myndin. Nú má heita að aldrei heyrist annað en »botnvörpungur«. Eg vildi að nefndin vildi trúa mér til þess, að orðið »bifreið« er vitleysa, og taka þessa tillögu sína aftur. Ef hún gerir það ekki, þá skora eg á deildina að fella tillöguna.