29.08.1913
Neðri deild: 46. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 1846 í C-deild Alþingistíðinda. (1197)
13. mál, vörutollur
Jón Jónsson:
Eg hefi litlu að bæta við það, sem háttv. þm. Ak. (M. Kr.) hefir sagt, — hann hreyfði víst við flestu af því, sem fram þurfti að taka.
Háttv. 1. þm. G.-K. (B. Kr.) hafði á móti því, að segldúkur yrði færður til. Kvað hann það gefa mönnum betra tækifæri til að komast undan tolli. Það er nú svo með þessa vöru sem flestar aðrar, að það má nota þær sem skálkaskjól til þess að skjótast undan tolli. En tilgangur okkar með þessari tilfærslu var sá, að létta á þessari vöru tolli, vegna þess, hve bráðnauðsynleg hún er, einkum fyrir bátaútveginn, sem sérstaklega er rekinn af fátækum útgerðarmönnum. Og það virðist ekki svo sérlega mikil hætta þó þessi vara verði tekin með, þar sem stjórnin hefir lagt til að strigi verði færður úr hærra flokki í lægri. Og þessi tilfærsla er einmitt bygð á tillögum frá tollheimtumönnum.
Hvað bátana snertir, þá var það ekki af því að við vildum í sjálfu sér undanskilja þá, heldur er það »principsins« vegna, að við stingum upp á að þeir verði tollaðir. Okkur þykir það ósanngjarnt, að menn geti flutt tolllaust hingað þá vöru, sem landsmenn þurfa að borga toll af, ef þeir smíða hana sjálfir, sem sé efniviðnum. Mér er kunnugt um það, að talsvert er flutt hingað til landsins af smíðuðum bátum, á öðrum skipum — en kaupi menn efnið til þeirra og smíði þá hér, verða menn að greiða toll af viðnum, sem í þá fer. Það er ósanngjarnt.
Mér finst það undarlegt, að háttv. 1. þm. G.-K. (B. gr.) vill undanskilja vélaolíu, en vill ekki ganga inn á að nefndur sé vélaáburður í frumvarpinu. En það er kunnugt, að mikið er flutt af vélaáburði til landsins, sem ekki er fljótandi og getur því ekki komist inn undir orðið olíu. Og að undanskilja þann einan áburð, sem fljótandi er, sýnist ekki mikil sanngirni, þar sem t.d. vélasmjör kemur alveg að sama haldi og er notað jöfnum höndum. Yfirleitt held eg, að allar breyt.till. nefndarinnar eigi við talsverð rök að styðjast. Við höfum gert okkur far um að forðast alt, það sem gæti orðið lögunum til skemdar og viljum sízt af öllu spilla framgangi málsins.