29.08.1913
Neðri deild: 46. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 1853 í C-deild Alþingistíðinda. (1204)

37. mál, hagstofa Íslands

Framsögum. minni hl. (Einar Jónsson):

Þegar þetta mál var hér til 2. umr. í deildinni 27. þ. m., urðu að vísu ekki eins miklar umræður um það og búast hefði mátt við, og þess vegna varð eg of seinn að mótmæla ýmsum atriðum, sem komu fram gegn minni skoðun og verð því að taka mér leyfi til þess nú.

Að vísu furðar mig á, hversu ástæðurnar voru veigalitlar, þegar aðrir eina mælskumenn og hæstv. ráðherra og hinir aðrir, sem tóku til máls, settu málið á odd eins og kallað er. Sannar það minn málstað sem sannan og réttan. Hæstv. ráðherra komst t.d. þannig að orði, að ekki ætti að horfa í þann litla kostnaðarauka, sem af þessu leiddi. Það mundi margborga sig að leggja út í hann. En sér ekki hæstv. ráðherra það sjálfur jafnvel og hver annar þingmaður, sem vill athuga orsakir og afleiðingar, að kostnaðaráætlun um útgjöld, þau sem hagatofan hefir í för með sér, liggur ekki fyrir nema að nokkru leyti. Menn sjá að eins, að hér er byrjað með 7500 kr. í laun og stofnkostnað, en alt annað vantar áætlun yfir. Mundi slíkur undirbúningar vera talinn ónógur af mér og öðrum sérstökum þm. Hæstv. ráðherra vitnaði til landsreikninganna, sem sýndu, hve mikið verk hér lægi fyrir. Eg neita því ekki, að verkið sé mikið og vandasamt, en eg neita hinu, að þingm. hafi leyfi til þess að horfa á sæmilega vellaunaða embættismenn vinna að eins 4–6 atundir á dag og að þeir séu svo annað tveggja að taka sér aðstoðarmann eftir þörfum eða vinna sjálfir fyrir aukaborgun ina aðra klukkutíma dagsins Enginn sanngjarn ráðherra ætti að stuðla að slíku. Hér vantar áreiðanlega kostnaðaráætlun fyrir hagstofuna alla, og hér vantar sönnun fyrir því, að hagskýrslurnar verði betur úr garði gerðar en verið hefir. Þessu máli á því að fresta að þessu sinni.

Háttv. þm. Dal. (B. J ) talaði líka um þetta mál. Ástæður hans voru sem endranær sjálfum honum líkar. Hann kvað hér um sáralítið minni kostnað að ræða. Þetta er engin viss áætlun og naumast frambærileg frá riddara í reikningi.

Hann kvað ilt að vera alt af að skifta um starfsmen við þetta starf. Getur vel verið satt. En eg hygg að hvort sem tilkvaddir menn vinna að hagskýrslunum í stjórnarráði eða nýrri hagatofu, að þá geti landinn fundið þá jafnt á báðum stöðum og margar aðrar orsakir komið á daginn, sem geri mannaskifti sjálfsögð, t. d. það, að þeir reynist verkum sínum ekki vagnir, líkt og hefir komið fyrir um þá menn í heiminum, sem nefndir hafa verið viðskiftaráðunautar.

Þá vildi hann álita, að þessi hagstofa yrði til þess að auka lánstraust landsins. Vitanlega færði hann engar ástæður fyrir því frekara. Vanta því sannanir einnig um það atriði á svipaðan hátt og 1909, þegar löggjafarþingi Íslendinga var sannað með órengdum dæmum, að viðskiftaráðunautur hlyti að auka lánstraust landsins — eg tala nú ekki um árið 1911, þegar alt átti að falla í ljúfa löð, ef maðurinn héti bara Bjarni Jónsson.

Slíkar ástæður tek eg ekki gildar þegar um töluverðan kostnaðarauka er að ræða á annara fé.

Það sem háttv. þingmaður mintist á reikningskunnáttu mína og þekking á öðrum efnum, brynur af mér eins og smávatnadropar og get eg því slept að minnast á það, en bið hann að eins að segja mér hve mikinn þunga af kaffi, sykri og exporti hann fengi fyrir eina krónu, þar sem kaffið kostaði 0,75 au. pundið, sykur 0,37 og export 0,49 –jöfn þyngd af hverri tegund fyrir sig.

Háttv. 1. þingm. S.-MúI. (J. Ol.) Var ekki samþykkur háttv. þingm. Dal. (B. J.); áleit að kostnaðurinn yrði töluvert hærri, en mundi samt borga sig. Er eg honum að sumu leyti samdóma.

En hvernig sem á málið er litið, sést það glögt, að nægan undirbúning vantar til þess að forsvaranlegt sé að samþykkja það á þessu þingi. En eftir því fylgi, sem þetta mál hefir fengið hér í deildinni, býst eg ekki við, að mikið stoði þótt mótmæli komi fram.