29.08.1913
Neðri deild: 46. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 1862 í C-deild Alþingistíðinda. (1209)

72. mál, landskiptalög

Björn Kristjánsson:

Eg ætlaði að gera örstuttar athugasemdir út af ræðu háttv. 1. þm. Skagf. (Ól. Br.) í gær, út af tillögu hans á, þgskj. 519, en komst þá ekki að.

Aðalástæða hana fyrir tillögunni er sú, að hann álítur það ábatasamsara að strandferðabátarnir væru í sambandi við millilandaferðir. Þessu heldur hann fram þrátt fyrir það, að það er upplýst, að strandferðirnar báru sig 1912 út af fyrir sig. Með öðrum orðum, þrátt fyrir það að strandferðaskipin þurftu ekkert flytja frá útlöndum. Báru sig eingöngu á innanlands flutningsþörfinni. Svo var flutningaþörfin mikil innanlanda. Inn háttv. þm. óttaðist samkepni útlendra félaga. Ef landssjóður tekur að sér útgerð strandskipanna, þá er alveg girt fyrir að nokkurt félag, jafnvel ekki Sameinaða gufuskipafélagið, láti sér koma til hugar að keppa við landssjóð, svo þar með er fengin full trygging fyrir, að útgerðin muni borga sig, eins og margbúið er að sýna fram á. Enn fremur er þess að gæta að allar líkur eru til þess, að tekjurnar af strandferðunum aukist til muna þegar höfnin er fullgerð hér í Reykjavík, og við það að menn fara að fá vörur sínar beina leið í stað þess að fara í krókaleiðir eftir þeim. Það þarf því ekki að óttast, að skipin fái ekki nóg að gera. Fremur má búast við því, að þau verði of lítil og of fá.

Eg skil því ekki að þetta geti verið aðalástæða ins háttv,. þm. til að vera á móti landssjóðsútgerðinni. Eg hygg að hann hafi einhverja aðra ástæðu, sem hann vill ekki nefna, ef til vill þá, að hann treysti ekki stjórninni og búist við að alt fari í handaskolum, líkt og fór um »Vestu«-útgerðina. Eg fyrir mitt leyti ber svo mikið traust til stjórnarinnar, að hún geti framkvæmt þetta, þar sem hún getur kvatt beztu menn landsins sér til ráðuneytis. Eg treysti stjórninni betur til þess að kaupa þessa smábolla og álít hana hafa betri tök á því og að halda þeim úti, heldur en ómentuðum sjómanni til þess að kaupa sér fjögra manna far, og að halda því úti, sem venjulega gengur vel.

Inn háttv. þm. telur, að ferðirnar muni ekki borga sig, þrátt fyrir það þó það sé sannað eins og tveir og tveir eru fjórir, og vill því fresta málinu til næsta þings. Til þess sé eg enga ástæðu; ef eitthvað þykir athugavert við lögin, þá má gera breytingu á þeim á næsta þingi.

Það liggur í hlutarins eðli, að landið á sjálft að hafa strandferðirnar, og það er mín skoðun, þótt eg til samkomulaga hafi getað fallist á að fyrst sé leitað samninga um strandferðirnar við ið fyrirhugaða Eimskipafélag.

Inn háttv. þm. sagði, að í frumvarpinu væri blandað saman ólíku efni. Því verð eg að mótmæla. Frumvarpið fer sem sé ekki fram á annað en það, að ef ekki takakast samningar við Eimskipafélagið, skuli ráðherra hafa heimild til að ákveða, hvort landssjóður skuli taka að sér útgerð strandferðaskipanna eða ekki.

Eg skal taka það fram út af ræðu hæstv. ráðherra, þar sem hann áleit þá menn skylda að gera drengilega afsökun við herra Henriksen, sem efa höfðu borið á vottorð hans um daginn, að þá vil eg geta þess, að það vottorð var einungis gefið í þeim tilgangi að hnekkja áætlun nefndarinnar og gera hana tortryggilega í augum manna, og þannig var vottorðinu beitt hér. Þess vegna er eg ekki tilleiðanlegur til að taka aftur nokkur þau ummæli, sem eg hefi haft um téð vottorð.