30.08.1913
Neðri deild: 47. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 1865 í C-deild Alþingistíðinda. (1224)
2. mál, fjáraukalög 1910 og 1911
Ólafur Briem:
Eg hafði ekki ætlað mér að standa upp nú, en háttv. 1. þm. G.-K. (B Kr.) hefir neytt mig til þess.
Eg gat gat þess við 1. umr., að ýmsir í nefndinni mundu einmitt hallast að landesjóðsútgerð fyrst og fremst, og er það nú komið á daginn. En eins og eg tók þá fram, mun það ekki vera skoðun meiri hluta nefndarinnar, heldur mun meiri hlutinn helzt kjósa samninga við ið fyrirhugaða Eimskipafélag Íslands, og þó eg kunni að standa einn uppi í atkvæðagreiðslunni, þá er eg þess fullviss, að atkvæði margra manna eru greidd í þeirri von, að ekki þurfi að koma til landssjóðsútgerðar.
Inn háttv. 1. þingm. G-K. (B. Kr.) sagði, að ekki væri hætt við að önnur félög mundu keppa við landssjóðsútgerðina. Þessu og öðru eins má, slá fram; úr því verður reynslan að skera. Ef háttv. þm. getur sagt þetta eftir 3–4 ár, þá er hægt að taka það til greina. Eg er í engum vafa um það, að Sameinaða félagið heldur áfram að flytja vörur þangað sem bezt borgar sig, á stærstu hafnirnar, og mundu því landssjóðsútgerðar-skipin aðallega flytja vörur á ina minni hafnarstaði.
Sami háttv. þm hélt, að stjórninni væri engin vorkunn að sjá um framkvæmd þessa máls. Eg þykist nú ekki hafa minna traust á stjórninni en ýmsir aðrir, en samt treysti eg henni ekki fyllilega í þessu efni. Eg efast um að nokkur maður í stjórnarráðinu hafi vit á þessu máli, og er þá enginn annar vegur en að stjórnin feli öðrum framkvæmd þess. Nú sýnir reynslan yfirleitt, að fyrirtæki bera sig ekki vel, nema því að eins að sá sem yfirstjórnina hefir, hafi þekkingu út í yztu æsar á hverju einstöku atriði, sem fyrirtækið varðar. Í öðru eins fyrirtæki og þessu verða öll smáatriði þýðingarmikil þegar þau koma mörg saman.
Sami háttv. þm. sagði, að það væri óyggjandi sannað. að landssjóðaútgerðin muni borga sig. Eg hefi nú engar sannanir heyrt í þessa átt enn. Alt það sem formælendur frumvarpsins hafa sagt, er bygt á líkindareikningi. Þótt samgöngumálanefndin sé vel skipuð og þótt hún sé tvöföld í roðinu, þá er það til of mikils ætlast, að hver einstakur þingmaður beygi sig fyrir skoðun hennar. Annara álit eg að þessi deila sé gagnslaus nú. Málið gengur sem má, og reynslan verður að skera úr, hvað vel það gefst.