30.08.1913
Neðri deild: 47. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 1894 í C-deild Alþingistíðinda. (1240)
99. mál, sala á landspildu til prestsins á Kolfreyjustað
Framsögum. meiri hl. (Tryggvi Bjarnason):
Hv. framsögum. minni hl. (S. S.) hélt því fram, að engar upplýsingar lægju fyrir um þetta mál. Eg get ekki fallist á að svo sé. Hér eru fyrir hendi upplýsingar eiðsvarinna matsmanna og eg vil ekki rengja þá, að þeir skýri rétt frá. Þess er líka að gæta. að hér er um ákveðið og takmarkað stykki að ræða. Það er einar 25 dagsláttur, og því ekki nema meðaltúnstærð. Það væri öðru máli að gegna ef stykkið væri stórt.
Eg skyldi háttv. framsögum. minni hl. svo, að hann væri á móti þessari kaupbeiðni og öðrum slíkum fyrir þá sök, að hann væri á móti sölu á opinberum eignum yfir höfuð. Eg get ekki álitið rétt, að vera á móti einstökum kaupbeiðnum af þeirri ástæðu, meðan þau lög eru í gildi, sem heimila sölu opinberra eigna. Hitt væri miklu nær, fyrir þá menn, sem eru á móti þeirri, stefnu, að bera fram frumvarp um að nema þau lög úr gildi, er heimila Sölu þjóðjarða og kirkjujarða. Eg get því ekki fallist á þessa ástæðu háttv. minni hluta.
Mér láðist að geta þess áðan, að í frumv. hefir misprentast Ytri-Skálavík fyrir Innri-Skálavík. Það verður auðvitað að leiðréttast, því nefndin gekk út frá því, að hér væri um Innri-Skálavík að ræða, eins og skjölin bera með sér.