30.08.1913
Neðri deild: 47. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 1911 í C-deild Alþingistíðinda. (1251)
35. mál, ný nöfn manna og ættarnöfn
Þorleifur Jónsson:
Eg býst Við því, að háttv. deild kæri sig ekki um að umræðum verði haldið áfram fram eftir nóttinni, og því skal eg reyna að vera sem stuttorðastur. En vegna þess að eg skrifaði undir nefndarálit meiri hlutans með fyrirvara, þá vildi eg í örfáum orðum leyfa mér að skýra frá því, hvers vegna eg var ekki í öllu sammála meiri hluta nefndarinnar, sem eg þó vann með.
Eg var samþykkur meiri hlutanum í því, að frumv. efri deildar yrði lagt til grundvallar og var eg með nefndinni í þeim breytingum, sem mér þótti betur fara. En sérstaklega vora þó 2 atriði, sem eg gat ekki orðið meiri hlutanum sammála um. Það fyrra var breyt.till. á þgskj. 375, 16, við 7. gr. Þar vildi meiri hlutinn að feldur væri c-liðurinn. Hann hljóðar þannig:
»Nöfn, er telja verður óhæf í íslenzku máli, svo sem ættarnöfn, er enda á son, sen eða dóttir, eða hneykslanleg eru á einhvern hátt, o.s.frv. Eg var ekki samþykkur að þetta væri felt burtu, því ef verið er að setja reglur um þetta á annað borð, þá sé eg ekkert á móti því að þetta ákvæði standi, sem var sett inn í efri deild. Efri deild vill ekki leyfa ættarnöfn, sem enda á »sen«, »son« eða »dóttir«.
Um það skal eg ekki annað segja en að ættarnöfn, sem enda á »sen«, finst mér alveg óhæf í íslenzku máli. Sumir í meiri hluta nefndarinnar héldu því fram, að þetta heyrði undir breyt.till. meiri hlutans, sem komi í staðinn fyrir þann lið í frumv. efri deildar, sem meiri hlutinn vildi fella burtu. Brtill. hljóðar þannig: »Nöfn, er hneykslanleg eru á einhvern hátt«. Þeir álitu, að ættarnöfn, sem enda á »sen«, »son« eða »dóttir«, heyri undir þetta. Eg get nú að vísu verið ánægður með, ef að sá skilningur kemst að, en eg teldi þó betra að c-liðurinn héldist eins og hann var í efri deildar frumv.
En sérstaklega er eg mótfallinn 27. brtill. meiri hlutana við 13. gr., að síðasta málsgreinin skuli falla burtu:
»Í öllum opinberum skrám og skýrslum skal ávalt rita eiginheiti manna á undan föðurnafni«.
Þetta vildu þrír af meiri hlutanum fella burtu, og er eg því algerlega mótfallinn. Finst mér það mjög óviðkunnanlegt að skæla og skekkja svo nöfn manna, að skrifa föðurnafnið á undan skírnarnafninu. Og þó þetta hafi tíðkast á síðari árum í skýrslum og skrám. þá er það þó alls ekki við smekk manna, sem ekki kunna við slík endaskifti á nöfnum sínum. Yrði frumv. mjög spilt, ef þessari grein væri raskað. Væri það líka undarlegt og andhælislegt þegar verið er að gefa mönnum bendingar um falleg íslenzk nöfn, en láta það um leið leyfast, að hafa slík endaskifti á nöfnum að útlendum hætti. Mundi þetta mæta mikilli mótspyrnu hjá almenningi. Og mér finst það sjálfsagt, að tekið sé tillit til almenningaálitsins í löggjöfinni.
Eg vildi segja það um frumvarpið í heild sinni, að aðaltilgangur þess er sá, að menn geti ekki heimildarlaust breytt nafni sínu, sem nú er farið að tíðkast, annaðhvort af fordild eða öðru. Þarf að gera gangskör að því, að menn geti ekki gert það heimildarlaust, og það er aðalatriðið í þessum lögum. Umbúnaðurinn er aukaatriði.
Eg skal geta þess, að ekki tel eg það heppilegt að innleiða ættarnöfn, og er ekki á þeirri skoðun, að það eigi að ýta undir menn til þess að taka þau upp, heldur eigi þvert á móti að draga úr því að almenningur geri það.
Þetta var fyr meir miklu algengara en nú. Þá »dependeruðu« menn mikið af útlendingum og þá einkum af Dönum og var altítt að höfðingjar tóku sér ættarnöfn. Á síðustu áratugum man eg ekki til að upp hafi verið tekin slík nöfn, svo að teljandi sé, svo að eg óttast ekki mjög mikið að þeim fjölgi, þó að leyft sé að tíðka þau. En þótt eg sé á móti ættarnöfnum, þá er eg á móti háttv. minni hl. í því, að menn gjaldi nokkurskonar sekt fyrir það að nota þau. Og einkum er það alveg fráleitt, að þeir sem nú þegar hafa slík nöfn, skuli fyrst þurfa að sækja um leyfi stjórnarráðsins til þess að fá að bera þau, þótt þeir hafi erft þau í gegnum marga ættliðu, og síðan verða að gjalda 20 kr. árlegan nefskatt, eða 500 kr. í eitt skifti. Það væri ódæma harðræði. T.d. yrðu þá hjón, sem eiga 8 börn, að gjalda 200 kr. á, ári fyrir nöfn sín og barnanna. Það gætu ekki nema ríkismenn, og þótt eg sé að mörgu leyti samþykkur tillögu minni hlutans, þá vil eg ekki ganga svona langt.
Það er yfirleitt oft álitamál, hvað spillir málinu, og hvað ekki. En ef börnunum er vel kent móðurmálið og þau venjast ekki á soramál, þá munu þau líka læra að taka ekki upp nafnskrípi, innlend eða útlend.
Eg hefi fylgst með nefndinni í því, að laga frumvarpið frá. því sem það var frá Ed., og skal svo ekki fjölyrða um það frekara.