30.08.1913
Neðri deild: 47. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 1917 í C-deild Alþingistíðinda. (1253)
35. mál, ný nöfn manna og ættarnöfn
Einar Jónsson:
Mér þykja menn ætla að fara að verða nokkuð vísindalegir hér. Sumir vitna í Grikki og Rússa, sem eg veit ekki til að við séum neitt skyldugir til að fara eftir. Aðrir skrifa nefndarálit, sem er bókstaflega tekið upp úr útgáfu Finns Jónasonar af Eddu. Mér finst að þessir menn ættu öllu fremur fremur að halda sér við það sem snertir málið sjálft.
Út af því, hvort vera skuli á undan á bóksakrám og slíku, fóðurnafn eða skírnarnafn, skal eg geta þess, að eg kann illa við fyrirkomulagið, eins og það er.
Annars mun eg sýna mína afstöðu með atkvæðagreiðslu, en álít óþarfa að fara út í goðafræði og Grikki og Rómverja í ekki stærra máli.