30.08.1913
Neðri deild: 47. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 1920 í C-deild Alþingistíðinda. (1255)
35. mál, ný nöfn manna og ættarnöfn
Ráðherrann (H. H ):
Eg vil vekja athygli háttv. þingmanna á því, að þetta frumvarp er samið samkvæmt áskorun Nd. á seinasta þingi. Það á alveg sama rétt á sér og frumvarpið um bæjanöfn, því að bæði frumvörpin hafa sama tilgang — ekki þann að neyða menn til að taka ný nöfn, heldur hinn, að setja reglur um það, á hvern hátt menn eigi að haga sér, ef þeir vilja taka upp ný nöfn. Það er til þess að koma í veg fyrir, að menn geti án nokkurar reglu notað sitt heitið hvert árið og vilt þannig á sér heimildir. Einkum er slík óregla hættuleg í viðskiftalífi manna. Af þessum ástæðum er frumvarpið borið fram og engum öðrum.
Öll þessi langa ræða háttv. þingm. Dal. Var því úti á þekju og þessar þjóðernishugleiðingar hans koma málinu ekkert við.
Það er alveg rétt, að menn eru alt af meira og meira að taka upp ættarnöfn og munu gera það, en ýmis óregla á sér stað í þessu efni. Það fer illa á því, að menn t.d. taki upp annara manna ættarnöfn, eins og oft á sér stað, án þess að nokkrar akorður séu settar við því.
Þetta frumvarp kemur í veg fyrir slíkt, með því að mæla svo fyrir, að menn geti ekki tekið upp ný nöfn leyfislaust — og það hindrar menn líka í því að villa á sér heimildir, hvort heldur er vegna skulda eða af öðrum ástæðum.