30.08.1913
Neðri deild: 47. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 1921 í C-deild Alþingistíðinda. (1257)

35. mál, ný nöfn manna og ættarnöfn

Framsögum. minni hl. (Jón Ólafsson):

Herra forseti! Eg þurfti að svara háttv. þm. Dal. (B.J.) fáeinum orðum viðvíkjandi bókaskránum. Honum þótti óþjóðlegt, að fylgja þeirri reglu um samningu bókaskráa, sem allar aðrar þjóðir fylgja. Eg skal geta þess, að þó að þetta hafi verið að mínum ráðum gert, þá var það þó stjórn Landsbókasafnsins, sem úrslitin átti um málið. En í henni sátu svo óþjóðlegir menn, sem þeir íslenzku-kennararnir yfirkennari Halldór Friðriksson og Pálmi. kennari Pálsson og féllust þeir báðir á þetta. Annarstaðar hefi eg ekki farið fram á þetta. Þetta varð eg að endurtaka, því að það hefir farið fram hjá skilningi háttv. þingm. Dal.

Eg vil benda honum á það, að eiginnöfn bæja voru orðin afböguð löngu áður en þetta land bygðist. Fyrst nú tunga okkar hefir varðveizt yfir 1000 ár þrátt fyrir þessi mörgu afböguðu bæjanöfn, þá er það sönnun þess, að eiginnöfn hafa engin áhrif til að spilla eða bæta tunguna.

Viðvíkjandi ættanöfnum skal eg geta þess, að ekki er til betra ráð til þess að innleiða þau, en að skattleggja þá menn, er þau bera. Það eru til mörg gömul og heiðvirð ættanöfn — t.d. hér í deildinni skal eg nefna þá háttv. þm. N. Ísf., 1. þm. Skagf. og 2. þm. Eyf. sem óefað vildu heldur borga skatt fyrir nöfn sín en missa þau. Þessir menn bera nöfn svo mikilsvirtra forfeðra og nafnkendra. Afleiðingin af því, að ættarnöfu yrðu skattlögð, yrði því áreiðanlega sú, að höfðingjarnir og heldra fólkið héldi þeim. En þá mundi það líka verða »fínt«, sem kallað er, og allir vildu þá fá ættarnöfn. Eg held þess vegna, að þessi brtill. háttv. þm. nái ekki tilgangi sínum.

Það er rétt hjá hæstv. ráðherra, að þingsályktunartill. var samþykt á síðasta þingi, sem skoraði á stjórnina að leggja sams konar frumv. og þetta fyrir næsta þing. Hún var borin fram af okkur. þáverandi þm. Akureyrar, Guðlaugi heitnum Guðmundssyni og mér. Og eg get fullvissað háttv. þm. um það, að okkur kom ekki til hugar, að fara lengra en meiri hl. nú leggur til, sem sé það, að koma í veg fyrir, að menn geti vilt á sér heimildir. Allar þessar ímynduðu þjóðernisfirrur hafa verið teknar inn í frumv. af háttv. Ed.

Eg vona því, að háttv. þm. fallist á að skera að þennan óþarfa »Appendix« burtu og halda sér við það eitt, sem nauðsynlegt er eftir tilgangi frumv , en ekki að takmarka frelsi manna alveg að óþörfu.

Sama er að segja um bókaskrárnar. Með allri virðingu fyrir Alþingi, þá dettur mér ekki í hug, að það hafi betra vit á því, hvernig semja eigi bókaskrár, en viðurkendir bókaverðir allra mentaþjóða.