30.08.1913
Neðri deild: 47. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 1928 í C-deild Alþingistíðinda. (1261)

35. mál, ný nöfn manna og ættarnöfn

Jón Ólafsson:

Herra forseti! Eg ætla ekki að halda neina ræðu, og ekki ætla eg að leggja út í svara háttv. 1. þm. Rangv. (E. J.), því mér fanst vera komið hálfgert geldingar-bragð af því sem hann sagði. En eg vildi að eins skjóta því að háttv. sessunaut mínum, hvort hann vildi ekki enda umræðurnar með því að skora á ráðherra að rjúfa þing út af mannanafnafrumv. og láta ganga til nýrra kosninga út af því.