02.09.1913
Neðri deild: 49. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 2006 í C-deild Alþingistíðinda. (1303)
90. mál, hafnarlög fyrir Vestmannaeyjar
Sigurður Sigurðsson:
Það mun þykja betur við eiga, úr því að eg hefi skrifað undir nefndarálitið með fyrirvara að eg geri grein fyrir fyrirvaranum.
Fyrirvari minn lýtur að því, að eg álít mjög varhugavert, að landasjóður taki að sér ábyrgð á stórum lánaupphæðum. Því er haldið fram, að hér sé um nauðsynlegt mannvirki að ræða, og skal því ekki neitað. En það sem gerir mig deigan við að vera með því, að landssjóður taki að sér ábyrgð, þá sem um ræðir í 2. gr. frumvarpsins, er það, að hér er ráðgert að gera höfn, svo — ófullkomna, að stærri skip geta ekki hafnað sig í henni. Þar sem hún verður dýpst, er dýpið 5 metrar eða 16 fet. Stærri millilandaskipin rista eitthvað um eða yfir 20 fet, og er því ekkí viðlit fyrir þau að geta hafnað sig þar. Höfnin er því aðallega fyrir mótorbáta eyjarskeggja eða staðhöfn að eins fyrir þá sjálfa. Eg akal ekki neita því, að höfnin hafi töluverða þýðing fyrir Eyjamenn, bæði nú og sömuleiðis ef þeir taka upp botnvörpungaútgerð, sem eg hefi heyrt að þeir hafi í hyggju, sem og væri ólíkt ábyggilegra fyrir þá., heldur en að treysta alt á mótorbátaútveginn.
Annað atriðið, sem mér þótti varhugavert, er það, að mér virðist alt vera í óvissu um tekjur hafnarinnar. Auðvitað er ekki hægt að fullyrða neitt um tekjurnar, hvort þær verði meiri eða minni en áætlunin gerir ráð fyrir. Reynslan verður að skera úr því. En mitt hugboð er þetta, að tekjurnar séu mjög á huldu, og það gerir mig ragan við að samþykkja ábyrgð landssjóðs.