02.09.1913
Neðri deild: 49. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 2007 í C-deild Alþingistíðinda. (1304)

90. mál, hafnarlög fyrir Vestmannaeyjar

Framsögum. (Pétur Jónsson):

Það er vafalaust, að nefndin verður að taka til íhugunar þetta nýja atriði, sem hæstv, ráðherra benti á. Þó sé eg ekki ástæðu til að taka málið út af dagakrá þessa vegna, þar sem svo er liðið er á þingtímann; það má koma að breyt.till. við 3. umr.

Nefndin hikar sér við að hækka upphæðirnar í frumvarpinu, þótt svo óbyrlega blási. Það er ekki útséð um það enn, að í nánustu framtíð kunni að fást lægri tilboð en þetta frá Monberg eða öðrum. Mér þykir jafnvel ekki ólíklegt, eftir því sem eg hefi kynt mér málið, að Monberg kunni að lækka þetta tilboð. Það er ekki heldur loku skotið fyrir það, ef vel er leitað fyrir sér, að fást kunni lægri tilboð frá öðrum. Ef svo reynist, að áætlunin sé of lág og ekkert tilboð fáist fyrir þetta verð, þá má bæta við upphæðirnar á þinginu 1915, ef þá þykir tilækilegt að leggja í svo mikinn kostnað.

Út af því sem háttv. 1. þm. Árn. (S. S ) tók fram, þá er það auðvitað eftir hlutarins eðli, að hér er að eins um áætlaðar tekjur að ræða, og nefndinni fanst hún ekki geta fyllilega reitt sig á áætlunina, af því að hún er ekki nægilega sundurliðuð, en nefndinni þótti eftir atvikum rétt að taka áætlunina trúanlega, eftir því útliti sem á er. Það verður ekkert sagt með fullri vissu um tekjur framvegís og verður því að hafa áætlunina gætilega, eins og hún er líka sögð að vera.

Eg legg til að frumvarpinu verði vísað til 3. umræðu og að menn gefi sér tíma til þess að athuga málið á meðan.