02.09.1913
Neðri deild: 49. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 2018 í C-deild Alþingistíðinda. (1310)

26. mál, sparisjóðir

Tryggvi Bjarnason:

Jafnvel þótt það kunni að vera nauðsynlegt að samþykkja lög um, að skerpa eftirlit með sparisjóðum í landinu, þá finst mér eg ekki geta felt mig við frumv. eins og það er. Eg mundi fella mig betur við það, ef brtill. minni hlutans verða samþyktar. Með því að hafa umsjónarmann sparisjóða að eins einn, búsettan hér í Reykjavík, þá er farið að miklu leyti fram hjá öðru aðalatriðinu í eftirlitinu. Starf hans myndi að mestu verða skrifstofustarf, og með þannig löguðu fyrirkomulagi myndi að vísu fást meira samræmi í stjórn og starfrækslu sparisjóðanna, og reikningsfærsla öll verða samræmilegri. Með þannig löguðu eftirliti mætti einnig sjá á þeim skjölum, sem umsjónarmanni væru send, hvort rekstur sparisjóðanna væri lögum samkvæmur. En hinum aðalþættinum í eftirlitinu væri slept, eða farið fram hjá honum að miklu leyti, sem sé því, að sjá, hvernig lán úr sjóðnum væru trygð, eða að minsta kosti væri það svo með öll sjálfskuldarábyrgðarlán og víxillán. Því að þótt umsjónarmaður sæi skrá yfir nöfn þeirra manna, sem hefðu skuldbindingar við sjóðinn, lántakenda og ábyrgðarmanna, þá myndi einn maður ekki vera svo kunnugur um land alt, að hann gæti dæmt um gjaldþol þeirra. En það er þó annað aðalatriðið viðvíkjandi sparisjóðunum, að féð sé vel trygt. Aftur á móti ef eftirlitsmenn eru settir þeir einir, sem kunnugir eru innan héraðs, eins og minni hlutinn leggur til, þá er fengin meiri trygging fyrir góðu eftirliti hvað ábyrgðir snertir.

Þá hefir verið minst á kvittanir fyrir fé, því sem greitt er í Sparisjóðina, hvort það skuli Vera skilyrði fyrir gildi þeirra gagnvart sjóðunum, að þær séu undirritaðar af tveim mönnum, gjaldkera og bókara. Eg sé ekki nein sérleg vankvæði á því, að svo skuli vera, því að, þótt gjaldkeri taki stundum á móti greiðslum í sparisjóðinn þegar bókari er ekki við, getur hann gefið út bráðabirgðakvittun, og sent síðar aðalkvittun undirritaða af tveimur starfsmönnum sjóðsins og ónýtist þá in fyrri.

Þá er eg alveg mótfallinn þeirri brt. nefndarinnar, að fella burt úr frumv. ákvæðið um, að öll sjálfskuldarábyrgðarlán skuli borgast á 10 árum, þannig, að ekkert slíkt lán megi standa lengur en 10 ár. Það eru 2–3 ár síðan að tekin var sams konar ákvörðun viðvíkjandi sparisjóði Húnavatnssýslu og gefst hún vel. Allir, sem til þekkja, álíta þetta mjög góða tilhögun og eitt ið bezta, sem ákveðið hafi verið viðvíkjandi sjóðnum. Eg álit miklu betra, að hafa þetta svo, heldur en að framlengja alt lánið; sem myndi verða algild regla, enda þótt lánið væri að eins ákveðið til eins árs, heldur en að verða að segja láninu upp öllu í einu, sem oft myndi ekki verða gert fyr en stjórn sjóðsins áliti það ekki lengur vel trygt, og yrði það þá stundum ef til vill of seint. Sama er að segja um lán gegn veði í húsum; veðið rýrnar og væri því rétt að ákveða árlega afborgun af þeim. Lán gegn veði í jörðum eru einu lánin, sem eru venjulega svo vel trygð, að ekki er þörf að ákveða afborgun af þeim: