02.09.1913
Neðri deild: 49. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 2019 í C-deild Alþingistíðinda. (1311)
26. mál, sparisjóðir
Kristinn Daníelsson:
Eg vildi að eins með örfáum orðum gangast við þeim hálfgerða áburði, sem eg fékk hjá hæstv. ráðherra, að eg skoðaði sparisjóðina sem gróðafyrirtæki. Eg skal gjarnan kannast við það, að eg vildi óska, að sparisjóðirnir gætu grætt, og þar af leiðandi er eg ekki fylgjandi því, sem tekið hefir verið upp í 24. gr. frv., að leggja skatt á sparisjóðina. Lands bankinn og Íslandsbanki eru undanþegnir slíkum akatti, og mér finst að sparisjórðirnir ættu engu siður að vera það. Hæstv. ráðherra vildi ekki gera mikið úr þessu eftirliti, sem minni hlutinn vill láta nægja, — en eg hygg, að það myndi slaga hátt upp í þetta 1200 kr. eftirlit, sem hann heldur fram. Eg legg ekki mikið upp úr því eftirliti, sem einn maður hefði með öllum sparisjóðum á landinu, og það í hjáverkum sínum, því að eins og eg tók fram áðan, getur hann ekki lifað af 1200 kr.
Sú reynsla, sem fengin er af sparisjóðum hér á landi, hefir ekki sýnt annað, en alt hafi farið vel og þeir hafa yfir höfuð gott orð á sér. Mér hefir altaf verið það ljóst síðan eg fór að fást við sparisjóði, — og hefi eg töluvert við það stað starf fengist, — að aðaltilgangur þeirra sé að hjálpa mönnum til að ávaxta fé sitt tryggilega. En hitt verður, eins og hér á landi hagar til, einnig að vera tilgangur þeirra, að vera lánsstofnun.
Eg eg er viss um það að menn mundu, sakna þess, ef alveg yrði tekið fyrir það að sparisjóðir héldu áfram lánaviðskiftum við almenning. Það getur vel verið að það sé vegna óheppilegs ástands eins og hæstv. ráðherra sagði. En við búum í stóru landi og strjálbygðu, og eigum því afarerfitt með að ná til aðalpeningalindanna, bankanna, og kemur sér þá vel að hafa þessa smáseitla til þess að svala peningaþorsta okkar. Það getur vel verið að það gæti verið til bóta að sparisjóðirnir kæmust í samband við bankana, þaðan fengju þeir sitt útlánsfé og bankarnir hefðu svo eftirlitið með þeim. Hitt finst mér alt of sterkt til tekið hjá hæstv. ráðherra, að það væri að koma sparisjóðunum út á glapstigu, að láta þá reka lánsviðskifti við menn án þess að geta trygt sér lánin með fasteignaveðum. Það er alveg nauðsynlegt að sparisjóðirnir hafi töluvert fé í veltu til þess að geta fullnægt þörfum viðskiftamanna sinna. Eg þekki það t.d. um sparisjóð í Gullbringusýslu, sem eg hefi nokkuð með að gera, að í vor nm lokin þurfti almenningur mikla peninga, bæði þeir sem inni áttu, að taka út fé eitt, og aðrir að fá lán, meiri en sparisjóðurinn gat úti látið og þá þurfti að flýja til bankanna hér til þess að fullnægja þörf almennings.
Skal eg svo ekki fjölyrða meira um þetta mál og eg vona að menn vilji ekki meina sparisjóðum að komast á þannig, að þeir geti fullnægt inum smærri lánsþörfum landsmanna.