02.09.1913
Neðri deild: 49. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 2042 í C-deild Alþingistíðinda. (1322)
29. mál, ritsíma- og talsímakerfi Íslands
Ráðherraun (H. H.):
Eg er þakklátur háttv. meiri hluta fyrir vel unnið starf í þessu máli. Álit eg vel farið; að hann vill fella burt tillögur þær, sem efri deild hefir bætt inn í frumv.
Háttv. framsögum. (P. J.) hefir skýrt frá ástæðunum til þess, og hefi eg þar engu við að bæta.
Háttv. framsögum. sagði í niðurlagi málsins, að sér fyndist einkennilegt að »Stóra norræna« skyldi gera það að skilyrði fyrir að lánið yrði veitt með svo góðum kjörum, að bygð yrði hér loftskeytastöð, En það er alls ekker fé einkennilegt, því að félagið sér það, að það getur í vissum tilfellum haft hag af því ef hér er loftskeytastöð svo sterk, að hún nái til útlanda. Ef t.d. síminn slitnaði um hávetur, gæti stöðin komið í staðinn fyrir þráð um stundar sakir, þannig, að félagið þyrfti ekki að vinda svo bráðan bug að því, að taka dýr skip ef til vill úr nauðsynlegu starfi annarstaðar, til að gera við slitið. Auk þess gefur þráðlaus stöð, sem hefir skeytaskifti við skip í sjó, aukna trafík fyrir sæsímann.
Háttv. minni hluta þarf eg alls engu að svara. Skal eg enn og aftur taka það fram, að hér er alla ekki um neina veðsetningu á tekjum landssjóðs að ræða, heldur eingöngu að fá lán 2–3% ódýrara en ella mundi fást. Hér er alls ekki um neitt nýmæli að ræða. Það hefir frá upphafi verið ætlast til þess, að síminn borgaði sig sjálfur.
Í skilyrði félagsins liggur alls ekkert vantraust á landssjóði. En þetta félag er engin lánsstofnun, heldur er þetta fé, sem okkur stendur til boða, tekið af varasjóði félagsins.
Eg mundi telja okkur vel setta, ef ekkert yrði fremur en þetta til að veikja lánstraust landsins í útlöndum. Eg hefi þá trú, að það yrði fremur til að efla lánstraust landsins en veikja það, ef við getum sagt, að »Stóra norræna« hafi lánað okkur þessa upphæð með jafnverði til 30 ára gegn 4% rentu, því það sýnir einmitt stakt traust af þess hálfu.
Skal eg eigi tefja tímann lengur, vona eg að tillögur háttv. meiri hluta verði samþyktar.