02.09.1913
Neðri deild: 49. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 2043 í C-deild Alþingistíðinda. (1323)

29. mál, ritsíma- og talsímakerfi Íslands

Bjarni Jónsson:

Eg ætla að eins að biðja hæstv. ráðherra að útskýra dálítið betur fyrir mig, það sem hann síðast sagði. Mér er óskiljanlegt, hvernig stendur á því, að við eigum að fá betri kjör af því að lánið miðist við símatekjurnar, nema ef til þess er ætlast, að sá sem lánið veitir, fái að einhverju leyti leyfi til að heimta þær inn sjálfur.