02.09.1913
Neðri deild: 49. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 2062 í C-deild Alþingistíðinda. (1341)
88. mál, lögskipaðir endurskoðendur
Framsögum. minni hl. (Bjarni Jónsson):
Eg hefi aldrei sagt, að eg byggist við að endurskoðendur yrðu ekki settir nema í Stærri kaupstöðum. Eg hefi þvert á. móti sagt það við háttv. 1. þm. S.-MúI. (J. Ól.), að eg byggist við, að færir menn til þessa Starfa fyndust í hverri sýslu og yrði skipaðir þar.
Hann verður að halda mér til góða, þótt eg hafi ekki í þessu sambandi samið nein lög um »prospectus«, sem hann kallar. Það liggur alls ekki fyrir hér.
Viðvíkjandi því sem eg sagði um hlutafélögin, þá er það alveg rétt, því að menn verða ekki eins frakkir á að narra menn, þegar þeir vita, að þeir eiga að leggja reikningana undir lögskipaða endurskoðendur. Þetta átti því að vera vernd gegn slíkum »prospectus«. Líka mundu endurskoðendur geta, þó í óefni væri komið, verndað handa hlutafélögum þær leifar, sem kynnu að vera eftir að fyrsta árinu liðnu.
Það er ekki sama að vernda meðlimi fyrir sjálfum sér og vernda þá fyrir óhlutvandri stjórn. Stjórnandinn getur haft margar tungur, en hann verður aldrei að mörgum einstaklingum.