03.09.1913
Neðri deild: 50. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 2089 í C-deild Alþingistíðinda. (1374)
105. mál, jarðirnir Bústaðir og Skildingarnes lagðar undir lögsagnarumdæmi Reykjavíkur
Framsm. meiri hl. (Kristján Jónsson):
Fyrir 20 árum síðan, á Alþingi 1893, var lagt fyrir þingið frv. til laga um að leggja jarðirnar Laugarnes, Klepp, Skildinganes og Bústaði undir lögsagnarumdæmi Reykjavíkur. Var það gert þá, eins og nú er um þetta frumvarp, að tilhlutun bæjarstjórnar Reykjavíkur, sem þótti það æskilegt, að þetta væri gert. Þá á þinginu voru samþykt lög um að leggja Laugarnes og Klepp undir lögsagnarumdæmi Reykjavíkur og voru þau staðfest 23. Febrúar 1894. En þingið vildi þá ekki taka Bústaði og Skildinganes með upp í lögin, og mun aðalástæðan hafa verið sú, að Reykjavíkurbær, sem þá var orðinn eigandi að Laugarnesi og Kleppi, hafði ekki eignarrétt yfir Bústöðum og Skildinganesi. Sú ástæða var þá að minsta kosti borin fyrir í þinginu, og hún mun hafa ráðið úrslitum málsins. Reykjavík hefir, sem kunnugt er, stækkað mjög mikið síðan þetta var, fólkinu fjölgað og bygðin færst út til allra hliða. Það virðast því nú vera gildar ástæður til þess að fara fram á að þessar jarðir verði lagðar undir lögsagnarumdæmi bæjarins. Bústaðir liggja við suðaustur horn Reykjavíkurlands milli Elliðaánna og Reykjavíkurlands. Breiðholt, sem er eign Reykjavíkur, er að sunnanverðu. Elliðaárnar eru nú einnig eign Reykjavíkur, og Bústaði hefir kaupstaðurinn og eignast. Jörð þessi er nú í byggingu, en tilætlunin er sú, að þegar núverandi ábúandi deyr eða fer frá jörðinni á annan hátt, þá verði jörðin ekki bygð aftur, heldur verði hún lögð undir kaupstaðinn til afnota, og yrði þá búsið leigt tómthúsmanni. Með tilliti til þessa virðist nú ekkert geta verið því til fyrirstöðu, að þessi jörð verði tekin undir lögsagnarumdæmi Reykjavíkur. Eg sé ekki að nein ástæða sé til, sem mælir á móti því, sérstaklega þegar þess er gætt, að ábúðin fellur niður þegar ábúandinn, sem nú er á jörðinni, fer burtu: Hreppsfélagið getur þá eigi vænst neinna gjalda af jörðinni. Þetta getur því ekki orðið til neins skaða fyrir það, enda er því áskilin uppbót eða endurgjald, eins og lagafrumvarpið sýnir.
Eg get að nokkru leyti sagt ið sama um Skildinganes. Allir vita að sú jörð er á alla vegu innilokuð í landi Reykjavíkurkaupstaðar, nema auðvitað að sunnanverðu, því að þar er Skerjafjörðurinn. Bygging kaupstaðarins færist sí og æ nær mörkum jarðarinnar. Skildinganes er auk þess að hálfu leyti, að minsta kosti, eign Reykjavíkurbúa. Afstaðan segir það sjálf, að þessi jörð eigi að heyra undir lögsagnarumdæmi Reykjavíkur, en eg get búist við því, að það spilli fyrir framgangi málsins hér á þinginu, að sýslufélag Kjósarsýslu og Seltjarnarneshreppur hafa komið fram með mótmæli gegn því og amast mjög við því að það gangi fram En eg sé ekki, að sú mótstaða hafi við neitt að styðjast, því að í frumvarpi þessu, eina og í lögunum um Laugarnes og Klepp frá 1894, er svo ákveðið, að viðkomandi hreppur fái fult endurgjald fyrir það sem hann kann að missa af tekjum sínum sínum við þessa breytingu.
Þá má taka það fram, að það hefir í öðru mikilsverðu efni töluvert mikla þýðing fyrir Reykjavík að þessi breyting komist á, sérstaklega að því er Skildinganes snertir. Reykjavík hefir með aðstoð og fyrir tilstilli löggjafarvaldeins, ráðist í að byggja höfn að norðanverðu við Seltjarnarnesið, það er að segja þar sem skipulagi Reykjavíkur er og hefir verið um langt skeið. En nú er í ráði, að einnig verði gerð höfn við nesið sunnanvert, einmitt fyrir Skildinganeslandi.
Það leggur sig nú sjálft, að það er áríðandi, að bæjarfélagið geti haft hönd í bagga með þessari hafnargerð. Menn segja reyndar að þessi ráðagerð muni nú vera fallin niður, en þá hygg eg, að hún geti vel komið upp aftur þá og þegar, og að rétt sé að taka hana til greina þegar þetta mál er athugað. Eigi þarf að óttast það. að breyting sú, sem frumvarpið v ill lögleiða, muni riða í bág við fyrirætlun þessa um hafnargerð við Skerjafjörð, eins og sumir virðist ætla. Ef það reynist framkvæmanlegt að byggja bátahöfn eða jafnvel botnvörpungahöfn í Skerjafirði, þá mun það alla ekki mæta mótstöðu í Reykjavík eða hjá Reykvíkingum. Og á hinn bóginn hefi eg ekki heldur heyrt, að eigendur Skildinganess setji sig upp á móti frv. af þeirri ástæðu En því verður eigi neitað, að það er harla eðlilegt, að Reykjavíkurbær vilji hafa lögmætan rétt til að hafa afskifti af hafnargerð við Skerjafjörð, sem er að eins steinsnar frá kaupstaðnum.
Það er ýmislegt fleira en eg hefi nú talið, sem gerir þessa breytingu æskilega. Eg hefi áður bent á, í hve miklu nágrenni Skildinganes er við Reykjavíkurbæ, og af þeirri ástæðu er það nauðsynlegt, að bærinn sjái um lögreglueftirlit í landi jarðarinnar. Reynslan hefir oft sýnt þá nauðsyn. En það verður eigi hægt að hafa þar lögreglueftirlit af bæjarins hálfu, nema því að eina að jörðin sé lögð undir lögsagnarumdæmið.
Þá er það nauðsynlegt að bæjarstjórnin hafi hönd í bagga með. hvernig háttað er skepnueftirliti á jörðinni, og geti gert ráðstafanir til að hefta peningságang þaðan á land bæjarmanna, sem þeir kvarta mjög undan. Eg veit líka til þess, að ábúendur jarðarinnar kvarta undan peningságangi frá bænum. Það mundi verða létt að ráða sæmilega fram úr þessum vandræðum, ef þessi breyting kæmist á, en annars mun það einlægt verða fremur torvelt.
Þá getur það og haft nokkra þýðing í þessu máli, að ef Skildinganes legðist undir lögsagnarumdæmi Reykjavíkur, þá gæti bæjarstjórnin ráðið vegagerðum um land jarðarinnar, og er það ekki lítilsvert, því að yfir Skildinganesland liggur t.d. aðalvegur bæjarmanna suður á Álftanes, þegar sjóleiðin er farin.
Yfirleitt get eg ekki séð, að þær ástæður, sem færðar hafa verið á móti þessu máli, hafi við nein veruleg rök að styðjast, einkum þar sem hreppurinn á að fá fult endurgjald fyrir þann skaða, sem hann álízt verða fyrir við bessa breytingu.
Loks skal eg geta þess, að síðan 1894, að jarðirnar Laugarnes og Kleppur voru lagðar undir lögsagnarumdæmi Reykjavíkur, hafa ekki komið fram neinar kvartanir yfir þeirri ráðstöfun. Í fyrstu var raunar deila um. hvernig reikna skyldi gjaldið, er Reykjavík átti að greiða til Seltjarnarneshrepps. En það var til lykta leitt á þann veg, að fenginn var dómsúrskurður um það, og síðan hefir engin óánægja risið út af því.
Að endingu skal eg geta þess, að eg er ekki flytjandi þessa máls, þó að eg sé framsögumaður meiri hluta nefndarinnar. Þingmenn Reykjavíkur eru flutningsmenn þess eftir fyrirlagi bæjarstjórnarinnar.