03.09.1913
Neðri deild: 50. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 2105 í C-deild Alþingistíðinda. (1388)
95. mál, málskostnaður
Stefán Stefánsson:
Eg hefi ritað undir þetta frumv. með fyrirvara. Eg skal ekki tala langt mál; það er óþarfi, því að háttv. þm. Vestm. (J. M.) hefir tekið fram flest af því sem eg vildi segja. Að vísu leggur nefndin til, að frumv. Verði breytt frá því sem háttv. flutningsmaður þess fór fram á. En þó leggur það enn þá óeðlileg höft á dómara. Gerum nú t.d. ráð fyrir, að manni sé stefnt um skuld, sem hann hefir goldið; hann hefir tapað kvittuninni, en getur fært mjög miklar líkur fyrir því, að hann segi satt, að hann hafi goldið. Dómarinn getur ekki dæmt hann sýknan eftir líkum, og hann verður líka eftir frumv. að dæma hann í allan málakostnað. Í staðinn fyrir það, að með núgildandi ákvæðum mundi dómarinn ekki láta hann bera málakostnað, nema að nokkru leyti. Mér finst að þetta veiki það traust, sem maður á að bera til dómarana. Mér virðist að dómarinn eigi ekki að vera skyldur til að dæma menn í málskostnað, ef hann er sannfærður um, að maðurinn sé sýkn, þótt hann máske af sérstökum ástæðum ekki geti fært fullar sannanir fyrir sýknun sinni. Þetta olli því, að eg gat ekki verið málinu fylgjandi.