03.09.1913
Neðri deild: 50. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 2111 í C-deild Alþingistíðinda. (1393)
95. mál, málskostnaður
Kristján Jónsson:
Það er öðru nær en að eg sé spentur fyrir því, að þessi lög verði samþykt. Mér virðist tæplega ástæða til þess að lögbinda þetta, en til samkomulags get eg þó sætt mig við frumv. breytt eftir tillögum nefndarinnar, með því að eg tel að þá sé alveg hættulaust að samþykkja það. Það kemur þá ekki til framkvæmda nema því að eins að stefnandi fái allar kröfur sínar teknar til greina. Þegar þetta er svo ákveðið, hygg eg að lögin geti ekki verið óaðgengileg, því að stefndi þarf eigi að láta málið koma fyrir dómstólana; hann getur sæzt. Geri hann það ekki, þá sætir hann afleiðingunum sem það hefir að láta málið ganga til dóms, og það er að mínu áliti eðlilegt.
Athugasemd háttv. þm. Vestm. (J. M.) er eigi á rökum bygð, svo framarlega breytingartillagal: verður samþykt, sem eg tel sjálfsagt að verði; sækjandi, er lætur hjá líða að mæta við lögskipaða sáttatilraun, getur eigi unnið mál sitt, en hlýtur að fá frávísunardóm; hann getur því aldrei komið undir ákvæði frumvarpsins, ef þeim verður breytt samkvæmt breyt.till.
Það er áreiðanlegt, að dómstólavenjan hefir í langa hríð verið mjög væg er til málskostnaðar kemur, töluverð tilhneiging til þess að láta málskostnað falla niður, og hafa hann: heldur lágan, þá er hann hefir verið dæmdur. Verður því eigi neitað, að nokkur ástæða er til þess að fá þessu breytt, og til þess miðar frumvarpið; eftir breyt.till. er það þó því að eins lögskylt að dæma fullan málakostnað, að sækjandi vinni mál sitt að fullu og öllu, vinni það »pure«. Þá er ætlast til þess að hann fái fult endurgjald skaða síns.
Annars vil eg taka það fram, sem og hefir verið bent á af öðrum, að »praxis« dómstólanna í þessu efni hefir áreiðanlega verið að breytast og færast í réttara horf. Í síðustu 20 árin hefir alt stefnt að því, að þeim, er mál sín vinna til fullnustu, sé dæmdur málskostnaður að fullu eða að mestu leyti. Haldi þessi »praxis« áfram í sömu átt og festist meir og meir, þá verður minni þörf fyrir lagaákvæði eins og þau er í frumvarpinu felast.
Eg hefi svo ekki meira að segja um mál þetta. Sem sagt, álít eg það ekki varhugavert, að lögleiða þan ákvæði, er hér er farið fram á, það er að segja frumv. breytt samkvæmt breytingartill. Verður þá með lögum staðfest og styrkt nú »praxis«, er eg gat um.
Umr. lokið á nóni, og var þá fundi frestað til kl. 5 síðdegis.
Klukkan 5 síðdegis var fundur settur á ný, og byrjað á atkvæðagreiðslu.