09.07.1913
Neðri deild: 7. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 165 í C-deild Alþingistíðinda. (140)
21. mál, íslenskur sérfáni
Flutningsm. (L. H. Bjarnason):
Eg þakka háttv. þm. Ak. (M. gr.) og háttv. þm. -N: Múl. (Jóh. Jóh.) fyrir þær upplýsingar, að Sambandsflokkurinn hafi enga ákvörðun tekið í þessu máli. Mér þótti vænt um að fá að vita, að flokkurinn er þó hreinn af því. En eftir orðum hv. ráðherra og fyrri ræðu háttv. þm. Ak. (M. gr.), var full ástæða til að ætla, að flokkurinn mundi leggjast fast á móti frumv., enda ekki séð fyrir leikslok enn.
Sömuleiðis þakka eg háttv. þm. S.Þing. (P. J.) fyrir þá yfirlýsingu, að Bændaflokkurinn hefir enn svo óbundnar hendur um málið, að hann ætlast til að það fari til 2. umr. og síðar í nefnd. Það sannast á okkur flutningsmönnum, að “litlu verður Vöggur feginn„.
Viðvíkjandi háttv. þm. Dal. (B. J.) skal eg geta þess — þó að ekki ætti að þurfa að minna hann á það, jafn víðreistan mann og Austmannakæran — að það stóð öðruvís á fyrir Norðmönnum þegar þeir áttu í fánabardaganum við Svía, heldur en nú stendur á fyrir okkur. Norðmenn þurftu ekki annað en að samþykkja fánamálið þrjú þing í röð til þess að fá því framgengt. Slíkt ákvæði er ekki í okkar stjórnarskrá, enda sakna eg þess líka í stjórnarskrárfrumv. háttv. þm. Dal.
Um Liszt og aðra rithöfunda vil eg ekki þrátta við háttv. þingmann hér. Eg vil að eins benda honum á, að haustsemester háskólans byrjar 1. Oktbr., og ætti hann þá, verði hann þá ekki önnum kafnari við viðskiftaráðunautsstörfin en hann hefir verið upp á síðkastið, að leita fræðslu til háskólakennarans í stjórnlagafræði, heldur en að leita hennar í þingmannssæti Reykjavíkur.
Þriðja mótbáran, sem hv. þm. hreyfði, Var sú, að það væri oss til háðungar, að lögleiða sérfána. Þá “háðung„ hefir þó jafnvoldug þjóð og Prússar, sem eru nú 40 milljónir, látið sér lynda. Þýzku sérríkin hafa sameiginlegt flagg að siglingafána, þýzka ríkisflaggið, láta sér nægja að flagga með sérfánanum heimafyrir. Veit viðskiftaráðunauturinn ekki þetta? Hann sagði að við værum einráðir um að taka okkur siglingafána. Hann hefði getað sagt og átt að segja, að vér hefðum átt kost á að ráða flaggi voru sem öðru, sem sé ef vér hefðum borið gæfu til að taka millilandafrumv. En nú lifum vér að framkvæmdinni til undir stöðulögunum, og það skilur. Eg held eg geti sagt það, án alls sjálfshóls, að hann geti fengið betri fræðslu um réttarstöðuna og fleira heldur en hann virðist nú eiga, ef hann leitar háskólans, annaðhvort til mín eða „kollega“ minna.